Liverpool með augastað á Diaby - Pocchetino á blaði hjá Real - Juventus hefur áhuga á Djed Spence
   þri 10. mars 2026 10:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sjáðu mörkin: Hrikaleg vítaspyrna kostaði Brentford
Bowen skoraði tvennu í gær og skoraði einnig í vítaspyrnukeppninni.
Bowen skoraði tvennu í gær og skoraði einnig í vítaspyrnukeppninni.
Mynd: EPA
Ouattara vill gleyma vítinu sínu í gær.
Ouattara vill gleyma vítinu sínu í gær.
Mynd: Brentford
West Ham varð í gær síðasta liðið til að komast í 8-liða úrslit enska bikarsins með því að leggja Brentford að velli með sigri í vítaspyrnukeppni.

Dango Ouattara reyndist skúrkurinn þegar hann reyndi Panenka vítaspyrnu, vippaði á mitt markið, en Alphonse Areola í marki West Ham stóð kyrr og greip vippuna.

West Ham skoraði úr öllum fimm spyrnum sínum, allar voru þær mjög góðar, og tryggði sér leik gegn Leeds í 8-liða úrslitunum. Það helsta úr leiknum má sjá í spilaranum hér að neðan.

West Ham 2 - 2 Brentford
1-0 Jarrod Bowen ('19 )
1-1 Igor Thiago ('28 )
2-1 Jarrod Bowen ('34 , víti)
2-2 Igor Thiago ('81 , víti)
(5-3 í vítaspyrnukeppni)


Athugasemdir
banner
banner