Wilson óvænt að semja aftur - Man Utd bætir öðrum miðjumanni Forest á óskalistann - City að klára kaup - Real fylgdist með Tonali
   þri 10. mars 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ísland í dag - Stórleikir og Mjólkurbikar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það eru spennandi leikir á dagskrá í Lengjubikarnum í dag og í kvöld þar sem keppt er í A-deild í karla- og kvennaflokki.

Í karlaflokki eigast Þór og Valur við í úrslitaleik riðils 2 og hefst viðureign liðanna klukkan 17:00 í Boganum.

Þór er með eins stigs forystu á toppi riðilsins fyrir þennan lokaleik. Akureyringum nægir því jafntefli til að tryggja sér toppsætið, á meðan Valsarar þurfa á sigri að halda.

Skömmu eftir lokaflautið hefst svo viðureign Þórs/KA gegn FH í riðli 1 í kvennaflokki. Liðin eigast við í þýðingarlitlum úrslitaleik um þriðja sætið, þar sem bæði lið eiga 6 stig eftir 4 umferðir.

Í riðli 2 tekur Breiðablik á móti ÍBV og þarf á sigri að halda til að blanda sér í toppbaráttuna. ÍBV er á botni riðilsins með eitt stig eftir tvær fyrstu umferðirnar.

Að lokum spila Úlfarnir við Hamar í fyrsta leik Mjólkurbikarsins.

Lengjubikar karla - A deild, riðill 2
17:00 Þór - Valur (Boginn)

Lengjubikar kvenna - A deild, riðill 1
19:30 Þór/KA - FH (Boginn)

Lengjubikar kvenna - A deild, riðill 2
20:30 Breiðablik - ÍBV (Kópavogsvöllur)

Mjólkurbikar karla
20:00 Úlfarnir - Hamar (Lambhagavöllurinn)
Athugasemdir
banner