Wilson óvænt að semja aftur - Man Utd bætir öðrum miðjumanni Forest á óskalistann - City að klára kaup - Real fylgdist með Tonali
   mán 09. mars 2026 13:00
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
„FH hefur ekki efni á að missa hann“
FH var í 8. sæti í ótímabæru spá Fótbolta.net sem opinberuð var á laugardaginn.
FH var í 8. sæti í ótímabæru spá Fótbolta.net sem opinberuð var á laugardaginn.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
„Við getum reiknað með því að þeir taki inn tvo, þrjá leikmenn í viðbót“
„Við getum reiknað með því að þeir taki inn tvo, þrjá leikmenn í viðbót“
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Mikil leikmannavelta hefur verið í Kaplakrika í vetur. Jóhannes Karl Guðjónsson tók við liðinu eftir að félagið framlengdi ekki samning Heimis Guðjónssonar eftir síðasta tímabil.

Alls hefur félagið misst tíu leikmenn sem komu við sögu á síðasta tímabili, þar af nokkra lykilmenn, en liðið hefur sótt tíu leikmenn í staðinn.

Í útvarpsþætti Fótbolta.net á laugardag var síðasta ótímabæra spá Bestu deildarinnar opinberuð og voru FH-ingar í 8. sæti deildarinnar.

„Þetta er búið að vera áhugavert undirbúningstímabil hjá FH. Þeir missa Björn Daníel, hann fer að þjálfa á Höfn. Sigurður Bjartur er farinn til Spánar, Ahmad Faqa er farinn, Einar Karl fer, Bragi Karl fer í Njarðvík, þeir skipta um markvörð og Böddi er farinn til ÍA,“ sagði Haraldur Árni Hróðmarsson, fyrrum þjálfari Grindavíkur og sérstakur álitsgjafi um Bestu deildina, og hélt áfram:

„Síðan fer Bjarni Guðjón í Þór sem mér fannst óvænt. Mér fannst þeir ekki eiga efni á því að missa hann líka. Hann var ákveðið púsl á miðjunni hjá þeim. Þetta er orðið svolítið þunnt. Við getum rætt um stöðu FH í dag en ég held að við getum reiknað með því að þeir taki inn tvo, þrjá leikmenn í viðbót,“ sagði Haraldur að lokum.

Komnir:
Jökull Andrésson frá Aftureldingu
Kári Kristjánsson frá Þrótti R.
Adolf Daði Birgisson frá Stjörnunni
Sverrir Páll Hjaltested frá ÍBV
Tobias Carlsson frá Svíþjóð
Aron Jónsson frá Aftureldingu
Kristján Snær Frostason frá HK
Arnór Borg Guðjohnsen frá Vestra (var á láni)
Gils Gíslason frá ÍR (var á láni)
Axel Marcel Czernik frá Breiðabliki

Farnir:
Sigurður Bjartur Hallsson til Spánar
Björn Daníel Sverrisson hættur og tekinn við Sindra
Böðvar Böðvarsson í ÍA
Ahmad Faqa til AIK (var á láni)
Bjarni Guðjón Brynjólfsson í Þór á láni
Bragi Karl Bjarkason í Njarðvík
Einar Karl Ingvarsson í Hauka
Mathias Rosenörn
Dagur Örn Fjeldsted í Breiðablik (var á láni)

Samningslaus:
Dagur Traustason
Útvarpsþátturinn - Mánuður í Bestu deildina
Athugasemdir
banner