Wilson óvænt að semja aftur - Man Utd bætir öðrum miðjumanni Forest á óskalistann - City að klára kaup - Real fylgdist með Tonali
   mán 09. mars 2026 21:45
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Muric gaf sigurmarkið á Ólympíuleikvanginum
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Lazio 2 - 1 Sassuolo
1-0 Daniel Maldini ('2 )
1-1 Armand Lauriente ('35 )
2-1 Adam Marusic ('92)

Lazio og Sassuolo áttust við í eina leik kvöldsins í efstu deild ítalska boltans og náðu heimamenn forystunni snemma leiks, þegar Daniel Maldini skoraði af stuttu færi. Maldini, sem er sonur goðsagnarinnar Paolo Maldini og þar af leiðandi barnabarn Cesare Maldini, var réttur maður á réttum stað og fylgdi marktilraun Gustav Isaksen eftir.

Lazio var sterkara liðið allan leikinn en gestirnir frá Sassuolo jöfnuðu metin eftir glæsimark Armand Laurienté sem slapp í gegn eftir frábært samspil við liðsfélagana og kláraði með glæsilegu marki.

Staðan var því jöfn í leikhlé og héldu yfirburðir Lazio áfram í síðari hálfleik.

Heimamenn klúðruðu góðum færum og stefndi leikurinn í jafntefli allt þar til í uppbótartíma, þegar bakvörðurinn Adam Marusic skoraði afar sjaldgæft mark.

Marusic skoraði með skalla eftir galið skógarhlaup hjá Arijanet Muric, sem er hjá Sassuolo á láni frá Ipswich.

Nýliðar Sassuolo eru einu stigi fyrir ofan Lazio um miðja deild þrátt fyrir tapið.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner
banner
banner