Omar Sowe er byrjaður að æfa með ÍBV eftir að hafa slitið krossband í leik með liðinu í maí á síðasta tímabili. Sowe kom til ÍBV frá Leikni eftir tímabilið 2024 og hafði skorað þrjú mörk í Mjólkurbikarnum og eitt í deildinni þegar hann meiddist.
Omar er gambískur framherji sem fæddur er 2000 og kom fyrst til Íslands tímabilið 2022 þegar hann kom til Breiðabliks frá Bandaríkjunum.
Omar er gambískur framherji sem fæddur er 2000 og kom fyrst til Íslands tímabilið 2022 þegar hann kom til Breiðabliks frá Bandaríkjunum.
„Þetta lítur allt í lagi út, ég er byrjaður að æfa með liðinu, en er ekki farinn í kontakt. Það svo að komast í gott leikform eftir svona meiðsli er líka maraþon. Ég er kominn aðeins áleiðis, með hjálp frá Guði verð ég mættur aftur eftir ekki of marga leiki," segir Sowe við Fótbolta.net.
„Ég gæti sagt þér í dag að ég verði mættur fyrir fyrsta leik í móti, en á morgun gæti tilfinningin verið að ágúst verði nærri lagi. Þetta er bardagi dag frá degi, en ef það verður ekkert bakslag þá verður það nær byrjun tímabilsins heldur en seinni hluta mótsins," segir Sowe.
Athugasemdir


