Wilson óvænt að semja aftur - Man Utd bætir öðrum miðjumanni Forest á óskalistann - City að klára kaup - Real fylgdist með Tonali
   mán 09. mars 2026 18:00
Ívan Guðjón Baldursson
Neymar í bráðabirgðahópnum - Ancelotti fylgist með
Mynd: EPA
Brasilíska stórstjarnan Neymar er með í bráðabirgðahóp landsliðsins sem spilar ælfingaleiki í lok mánaðar.

Carlo Ancelotti landsliðsþjálfari ætlar að fylgjast náið með næstu leikjum Santos til að skoða Neymar og sjá hversu góðu líkamlegu standi kantmaðurinn er í. Hann mun í kjölfarið taka ákvörðun um hvort Neymar ferðist með landsliðinu í æfingaleikina.

Neymar er 34 ára gamall og hefur verið að glíma við tíð meiðsli á undanförnum árum. Hann dreymir um að taka þátt á sínu síðasta heimsmeistaramóti eftir að hafa farið með brasilíska landsliðinu á HM 2014, 2018 og 2022.

Brasilía spilar æfingaleiki við Frakkland og Króatíu í kringum næstu mánaðamót. Fótboltaþjóðin mikla er svo í riðli með Marokkó, Haítí og Skotlandi á HM.

   08.03.2026 07:00
Kokkurinn krefur Neymar um miskabætur

Athugasemdir
banner
banner
banner