Matthew Benham, eigandi Brentford, talaði fyrir framan fjölda fólks á sérstakri ráðstefnu MIT háskólans um gagnagreiningu í íþróttum.
Benham fór víðan völl í ræðu sinni og talaði meðal annars um fótboltamenn sem Brentford var næstum því búið að kaupa til sín en sprungu svo út hjá öðrum félagsliðum.
„Maður mun alltaf sjá eftir einhverju. Við hefðum getað keypt (Eberechi) Eze fyrir 4 milljónir sumarið 2019 og við hefðum getað fengið (Omar) Marmoush á frjálsri sölu fyrir um þremur árum síðan," sagði Benham.
„Sumarið sem við komumst upp í úrvalsdeildina voru tveir leikmenn sem við vorum mjög hrifnir af. Annar þeirra var Mykhailo Mudryk og við komumst nálægt því að kaupa hann mjög ódýrt, eða fyrir um 20 milljónir evra.
„Hinn var Michael Olise en við vorum nýkomnir upp í úrvalsdeildina og tvístígandi útaf ótrúlega hárri þóknun sem umboðsmaðurinn fór fram á. Greiðslan var svo fáránlega há að við hættum við félagaskiptin, þó að partur af okkur hafi hugsað að samanlögð heildarupphæðin þegar við lögðum saman kaupverðið og þóknunina hefði ekki verið alltof há."
Brentford hefur staðið sig mjög vel í því að fá leikmenn til sín á hágstæðum kjörum til að selja þá svo fyrir meiri pening í framtíðinni. Bryan Mbeumo, Yoane Wissa, Christian Nörgaard, David Raya og Ivan Toney eru lykilmenn sem hafa verið seldir frá félaginu á síðustu tveimur árum.
Til gamans má geta að Eze og Olise fóru báðir til Crystal Palace áður en þeir voru svo keyptir til stórveldanna Arsenal og FC Bayern. Eze var á þeim tíma hjá QPR og Olise hjá Reading.
Athugasemdir

