Enzo Fernandez sagðist ekki vita hvort hann yrði áfram hjá Chelsea á næstu leiktíð eftir að liðið féll úr leik í Meistaradeildinni eftir tap gegn PSG í gær.
Fernandez gekk til liðs við Chelsea fyrir rúmlega 100 milljónir punda í janúar 2023 en hann var þá dýrasti leikmaður í sögu úrvalsdeildarinnar.
Fernandez gekk til liðs við Chelsea fyrir rúmlega 100 milljónir punda í janúar 2023 en hann var þá dýrasti leikmaður í sögu úrvalsdeildarinnar.
„Ég veit það ekki, það eru átta leikir eftir og enski bikarinn. Svo er HM og svo sjáum við hvað gerist," sagði Fernandez við ESPN í Brasilíu.
Hann hefur spilað 45 leiki í öllum keppnum á þessu tímabili, skorað 12 mörk og lagt upp sex. Hann var tekinn af velli eftir klukkutíma leik í gær.
„Síðan ég kom til Chelsea höfum við lent í svipuðum aðstæðum og okkur tókst að snúa þeim við. Nú verðum við að einbeita okkur að því að vinna FA-bikarinn og ná markmiði okkar um að komast í Meistaradeildina á næsta tímabili.“
Athugasemdir


