Bayern veitir Man Utd samkeppni um Anderson - Liverpool hefur áhuga á Camavinga - Óvissa með leikmenn Arsenal
   mið 18. mars 2026 05:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Meistaradeildin í dag - Nær Liverpool að snúa taflinu við?
Mynd: EPA
16-liða úrslitunum í Meistaradeildinni lýkur í kvöld með fjórum leikjum.

Fyrsti leikur kvöldsins er milli Barcelona og Newcastle sem fram fer í Barcelona. Newcastle spilaði vel í fyrri leiknum en Lamine Yamal jafnaði metin í 1-1 í blálokin með marki úr vítaspyrnu.

Liverpool fær Galatasaray í heimsókn. Tímabilið hefur verið mikil vonbrigði hjá Englandsmeisturunum og liðið er marki undir eftir tap í Tyrklandi í fyrri leiknum.

Bayern er komið með annan fótinn í 8-liða úrslit eftir öruggan sigur á Atalanta í fyrri leiknum. Svipaða sögu má segja af Atletico Madrid sem vann öruggan sigur á Tottenham á heimavelli í frægum leik.

miðvikudagur 18. mars

Meistaradeildin
17:45 Barcelona - Newcastle (1-1)
20:00 Liverpool - Galatasaray (0-1)
20:00 Bayern - Atalanta (6-1)
20:00 Tottenham - Atletico Madrid (2-5)
Athugasemdir
banner
banner