The Telegraph segir að Tottenham hafi mögulega brotið lög í viðræðum sínum við Marcos Senesi, varnarmann Bournemouth.
Tottenham hefur náð samkomulagi við Senesi um að hann gangi til liðs við félagið ef liðinu tekst að halda sér uppi í úrvalsdeildinni.
Telegraph segir frá því að Tottenham hafi brotið lög með því að hefja samtalið við hann fyrir utan félagaskiptaglugga en aðeins félög erlendis geta rætt við leikmenn þegar hálft ár er eftir af samningnum.
Ekki nema Bournemouth hafi gefið skriflegt leyfi sem er óljóst að sögn Telegraph. Ekki er talið að Bournemouth muni kvarta undan þessari aðferð Tottenham og mun félagið því líklega sleppa við refsingu.



