Vinicius Jr orðaður við Man City - Bayern vill Gordon - Arsenal, Liverpool og Barcelona hafa áhuga á Barcola
   fös 08. maí 2026 21:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lengjudeildin: Dramatík í Egilshöll
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍR 2 - 2 Grindavík
1-0 Víðir Freyr Ívarsson ('7 )
2-0 Emil Nói Sigurhjartarson ('24 )
2-1 Rafael Alexandre Romao Victor ('64 , víti)
2-2 Lárus Orri Ólafsson ('89 )
Lestu um leikinn

ÍR og Grindavík mættust í Egilshöll í 3. umferð Lengjudeildarinnar í kvöld. ÍR var með þrjú stig fyrir leikinn og Grindavík tvö stig. ÍR-ingar fengu draumabyrjun þegar Víðir Freyr Ívarsson skoraði með með frábæru skoti.

Emil Nói Sigurhjartarson bætti öðru markinu við fyrir ÍR þegar hann skoraði beint úr aukaspyrnu. Rafael Victor fékk gott færi til að minnka muninn undir lok fyrri hálfleiks en Vilhelm Þráinn Sigurjónsson varði vel frá honum.

Grindavík fékk vítaspyrnu þegar André Musa braut á Haraldi Björgvin Eysteinssyni. Rafael Victor steig á punktinn og minnkaði muninn fyrir Grindavík.

Bergvin Fannar Helgason var nálægt því að bæta þriðja marki ÍR við stuttu síðar en skaut í slá.

Það var dramatík í lokin því Lárus Orri Ólafsson jafnaði metin fyrir Grindavík eftir langt innkast og bjargaði stigi fyrir liðið. ÍR er í 4. sæti með fjögur stig Grindavík er með þrjú stig í 8. sæti.
Lengjudeild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    HK 2 2 0 0 6 - 2 +4 6
2.    Þróttur R. 2 2 0 0 5 - 1 +4 6
3.    Fylkir 3 2 0 1 5 - 2 +3 6
4.    Leiknir R. 2 1 1 0 3 - 2 +1 4
5.    Njarðvík 3 1 1 1 2 - 2 0 4
6.    ÍR 2 1 0 1 8 - 7 +1 3
7.    Grindavík 2 0 2 0 1 - 1 0 2
8.    Völsungur 2 0 2 0 1 - 1 0 2
9.    Vestri 2 0 1 1 1 - 3 -2 1
10.    Afturelding 2 0 1 1 4 - 7 -3 1
11.    Grótta 2 0 0 2 2 - 6 -4 0
12.    Ægir 2 0 0 2 1 - 5 -4 0
Slapp
banner
banner