Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
Kennie: Líður eins og ég sé 25 ára
Ólafur Ingi: Þurfum að vinna í andlega þættinum
Rúnar Kristins: Búnir að vinna í þessu í tvö og hálft ár
Svekktur fyrirliði Vals: Vorum ekki nógu góðar til að verðskulda sigur
Lárus Orri: Þá ertu annaðhvort í fallbaráttu eða í baráttu um Evrópusæti
Jói Kalli: Auðvitað er þetta á minni ábyrgð
Böddi: Hjálpaði til að FH var í einhverjum nýjum lit af búning
Skoraði sigurmarkið og grínaðist með samherjann - „Rósey hendir einhverju góðu á hana“
Ray Anthony: Grenjum í kvöld
Maggi: Ákall á Mosfellinga
Brynjar Björn: Það er klárt brot á Óla
Heimir Guðjóns: Hann á skilið freyðivín frá mér
Badu: Ég held að ástæðan sé mun einfaldari en metnaðarleysi
„Þeir skapa nánast ekki færi í fyrri hálfleik, skora samt tvö mörk úr þessum hornum sínum"
Mattías Kjeld: Valur gat ekki lofað mér mínútum
Nenad: Búið að vera töfrasirkús
Jóhann Birnir: Eitthvað kæruleysi hjá öllum
„Þá er ég ekki það grænn og vitlaus að ég get alltaf hrósað okkur fyrir frábært spil og ægilega óheppnir"
Borja: Allt of dýrt að fá á sig mörk úr föstum leikatriðum
Gunnar Heiðar: Þetta er erfiðasta fæðing sem ég hef séð
   fös 08. maí 2026 22:57
Hafþór Örn Laursen
Jói Kalli: Hörkugæði og hraði í þessum strák
Jóhannes Karl, þjálfari FH
Jóhannes Karl, þjálfari FH
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FH gerði 3-3 hörkujafntefli við Breiðablik í kvöld í 6. umferð Bestu Deildarinnar.

Fyrst og fremst er ég mjög ánægður með frammistöðu minna manna í þessum leik frá A til Ö, þetta var hörkuleikur og mikið af hörkuatvikum. Við sýndum mikinn karakter og sköpum okkur færi, en það var svekkjandi að fá seinna markið á sig í blálok fyrri hálfleiks.''

Gils Gíslason var á skotskónum í kvöld, en hann skoraði 2 mörk fyrir FH.

„Gils var hörkuduglegur allan leikinn, hann var orðinn þreyttur undir lok leiks en hann skilaði sínu fyrir liðið. Við vitum það auðvitað að það eru hörkugæði og hraði í stráknum og hann kann að skora mörk.''

Ísak Óli Ólafsson og Sverrir Páll Hjaltested voru ekki með í kvöld eftir að hafa hlotið alvarleg höfuðmeiðsl í seinasta leik. Jó var spurður út í þeirra bata.

„Þeir eru í svokölluðum „höfuðmeiðslaprótokol'' sem þeir þurfa að fylgja. Við vitum ekki alveg stöðuna á þeim en það er dag fyrir dag ferli sem við vinnum með okkar sjúkraþjálfara og vonandi ná þeir fullri heilsu sem fyrst''.

Eftir viðtalið spurðist fréttaritari um meiðsli Úlfs Ágústs en hann fór útaf í lok leiks á börum. Fékk hann þau svör að hann þarf að fara í myndatöku á ökkla og óvíst erum framhaldið.

Lestu um leikinn: Breiðablik 3 -  3 FH

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum fyrir ofan.
Slapp
banner
banner