Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
Kennie: Líður eins og ég sé 25 ára
Ólafur Ingi: Þurfum að vinna í andlega þættinum
Rúnar Kristins: Búnir að vinna í þessu í tvö og hálft ár
Svekktur fyrirliði Vals: Vorum ekki nógu góðar til að verðskulda sigur
Lárus Orri: Þá ertu annaðhvort í fallbaráttu eða í baráttu um Evrópusæti
Jói Kalli: Auðvitað er þetta á minni ábyrgð
Böddi: Hjálpaði til að FH var í einhverjum nýjum lit af búning
Skoraði sigurmarkið og grínaðist með samherjann - „Rósey hendir einhverju góðu á hana“
Ray Anthony: Grenjum í kvöld
Maggi: Ákall á Mosfellinga
Brynjar Björn: Það er klárt brot á Óla
Heimir Guðjóns: Hann á skilið freyðivín frá mér
Badu: Ég held að ástæðan sé mun einfaldari en metnaðarleysi
„Þeir skapa nánast ekki færi í fyrri hálfleik, skora samt tvö mörk úr þessum hornum sínum"
Mattías Kjeld: Valur gat ekki lofað mér mínútum
Nenad: Búið að vera töfrasirkús
Jóhann Birnir: Eitthvað kæruleysi hjá öllum
„Þá er ég ekki það grænn og vitlaus að ég get alltaf hrósað okkur fyrir frábært spil og ægilega óheppnir"
Borja: Allt of dýrt að fá á sig mörk úr föstum leikatriðum
Gunnar Heiðar: Þetta er erfiðasta fæðing sem ég hef séð
   fös 08. maí 2026 23:52
Sigurjón Árni Torfason
Frábær frammistaða Keflvíkinga - „Hann er gríðarlega mikilvægur fyrir okkur"
Haraldur Freyr
Haraldur Freyr
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stefan Ljubicic er mjög öflugur framherji.
Stefan Ljubicic er mjög öflugur framherji.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Keflvíkingar unnu 3-1 sigur á ÍA núna í kvöld á Elkem vellinum á Akranesi í 6. umferð Bestu deildar Karla.

Haraldur Freyr, þjálfari Keflavíkur, var mjög ánægður eftir leik með frammistöðu sinna manna og verðskuldinn sigur.

Lestu um leikinn: ÍA 1 -  3 Keflavík

„Við unnum 3-1 verðskuldaðan sigur, fannst við vera töluvert betri aðilinn hér í dag. Fannst við spila mjög vel, ÍA kannski aðeins meira með boltann en mér fannst við skapa hættulegri færi mjög verðskuldaður sigur."

Keflavík komu út í seinni hálfleikinn mun sterkari.

„Við töluðum um það í hálfleik bara halda áfram og halda áfram að þora og halda í boltann þegar það á við og klára sóknirnar okkar. Mér fannst við koma mjög flottir út í seinni hálfleikinn. Komnir í 3-0 stöðu óþarfi að fá þetta mark á sig, ég held að það sé hendi, en heilt yfir frábær frammistaða hjá liðinu."

Stefan Ljubicic er Lykilmaður í Keflavíkurliðinu og mikilvægur bæði inní teig og í uppspili.

„Hann er gríðarlega mikilvægur fyrir okkur sérstaklega í föstum leikatriðum bæði varnarlega og sóknarlega og svo er hann ákveðinn uppspilspunktur í leiknum okkar hann var flottur í dag ásamt flestum og er búinn að vera flottur."

Davíð Helgi átti mjög öflugan leik í dag og búinn að eiga gott tímabil hingað til og lið væntanlega farinn að skoða hann

„Hann er bara á láni hjá okkur og auðvitað getur Víkingur kallað hann til baka, en ég á svosem ekki von á því."

Þetta er annar Sigur Keflavík á tímabilinu og hafa oft verið óheppnir í sýnum leikjum

„Við höfum ekki fengið jafn mörg stig eins og ég hefði viljað miðað við frammistöðuna okkar á vellinum. Við höfum talað um það að halda áfram með frammistöðu og ef við fáum góða frammistöðu þá munu stigin koma. Í dag kom frammistaða og stig."
Slapp
banner