Vinicius Jr orðaður við Man City - Bayern vill Gordon - Arsenal, Liverpool og Barcelona hafa áhuga á Barcola
   fös 08. maí 2026 22:35
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Championship: Umdeildur dómur í Hull - „Spennandi að heyra hvað dómarinn segir"
Mynd: Millwall
Hull City 0 - 0 Millwall

Hull fékk Millwall í heimsókn í fyrri leik liðanna í undanúrslitum í umspili um sæti í úrvalsdeildinni í kvöld.

Leikurinn var tíðindalítill en það dró til tíðinda þegar fimm mínútur voru til loka venjulegs leiktíma.

Ryan Leonard hélt að hann hafi komið Millwall yfir en Tristan Crama og Charlie Hughes voru í bardaga inn á teignum og Crama, leikmaður Millwall, var dæmdur brotlegur og markið dæmt af.

„Þetta var mjög lítið. Báður voru að kljást svo það verður spennandi að heyra hvað dómarinn segir þegar hann sér þetta aftur," sagði Alex Neil, þjálfari Millwall, eftir leikinn.

Seinni leikur liðanna fer fram á heimavelli Millwall í Lundúnum á mánudaginn.
Slapp
banner