Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
Kennie: Líður eins og ég sé 25 ára
Ólafur Ingi: Þurfum að vinna í andlega þættinum
Rúnar Kristins: Búnir að vinna í þessu í tvö og hálft ár
Svekktur fyrirliði Vals: Vorum ekki nógu góðar til að verðskulda sigur
Lárus Orri: Þá ertu annaðhvort í fallbaráttu eða í baráttu um Evrópusæti
Jói Kalli: Auðvitað er þetta á minni ábyrgð
Böddi: Hjálpaði til að FH var í einhverjum nýjum lit af búning
Skoraði sigurmarkið og grínaðist með samherjann - „Rósey hendir einhverju góðu á hana“
Ray Anthony: Grenjum í kvöld
Maggi: Ákall á Mosfellinga
Brynjar Björn: Það er klárt brot á Óla
Heimir Guðjóns: Hann á skilið freyðivín frá mér
Badu: Ég held að ástæðan sé mun einfaldari en metnaðarleysi
„Þeir skapa nánast ekki færi í fyrri hálfleik, skora samt tvö mörk úr þessum hornum sínum"
Mattías Kjeld: Valur gat ekki lofað mér mínútum
Nenad: Búið að vera töfrasirkús
Jóhann Birnir: Eitthvað kæruleysi hjá öllum
„Þá er ég ekki það grænn og vitlaus að ég get alltaf hrósað okkur fyrir frábært spil og ægilega óheppnir"
Borja: Allt of dýrt að fá á sig mörk úr föstum leikatriðum
Gunnar Heiðar: Þetta er erfiðasta fæðing sem ég hef séð
   fös 08. maí 2026 21:28
Snæbjört Pálsdóttir
Siggi Höskulds eftir stórt tap: Þeir voru sterkari, fljótari og betri í fótbolta
Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs lofar hungraðra liði í næstu leikjum.
Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs lofar hungraðra liði í næstu leikjum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þór tapaði stórt, 6-0, gegn Víkingi í 6. umferð Bestu deildarinnar í kvöld og var þjálfarinn Sigurður Heiðar Höskuldsson afar svekktur eftir leik.

„Bara mjög erfitt tap. Rosalegt svekkelsi með marga hluti, varnarleikurinn alls ekki góður.“


Lestu um leikinn: Víkingur R. 6 -  0 Þór

„Mér fannst fyrri hálfleikurinn litast af því að við erum bara fínir sóknarlega og eigum mörg fín móment. Eigum færi og ef við skorum ekki og breytum ekki mómentinu að þá munum við ekki vinna einn einasta leik.“

„Nú eru komnir þrír leikir í röð þar sem við skorum ekki þrátt fyrir að eiga ágætis sóknarframmistöðu, sérstaklega í fyrri hálfleik. Skilar engu og það heggur alltaf aðeins í þig.“

„Fókus levelið í varnarleiknum út um allan völl, í pressu, skrefinu á eftir.“

Víkingar voru fljótir að refsa þegar Þór missti taktinn í seinni hálfleik.

„Komum rosalega vel inn í seinni hálfleik, fyrstu mínúturnar af honum, erum að pressa, missum fókusinn á meðan þeir eru með boltann, fara upp fá horn, skora. 4-0 það brýtur okkur aftur.“

Sigurður sparaði heldur ekki hrósið í garð Víkings.

„Bara allt saman, þeir voru betri í öllu. Þeir voru hrikalega góðir, þeir voru massífir. Þeir voru sterkari, fljótari og betri í fótbolta.“

„Þetta er samt ekkert að fara að brjóta okkur, áttum gott spjall inn í klefa. Ég held að svona tap og svona frammistaða hljóti að vekja menn.“

„Ég held að það hafi verið alveg sama hvernig við hefðum stillt upp, ef þú ert alltaf skrefinu á eftir í varnarleik að þá bakar hitt liðið þig. Ef þú skorar ekki úr færunum þá bara fer mjög illa.“

Þrátt fyrir tapið eru skilaboðin til stuðningsmanna skýr.

„Við erum bara miklu betri en þetta, það þarf bara að halda áfram að styðja liðið þó að við skítum á okkur hérna í dag.“

„Við ætlum allavega og ég að reyna að lofa stuðningsmönnum því að það komi aðeins öflugra og hungraðra Þórslið í næstu leiki.“

Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.


Slapp
banner
banner