Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
   fös 08. maí 2026 23:26
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Spánn: Markvörður Osasuna fékk ótrúlega klaufalegt rautt spjald
Mynd: EPA
Levante 3 - 2 Osasuna
0-1 Jeremy Toljan ('3 , sjálfsmark)
0-2 Ante Budimir ('11 )
1-2 Victor Garcia ('35 )
2-2 Victor Garcia ('37 )
3-2 Karl Etta Eyong ('90 )
Rautt spjald: Sergio Herrera, Osasuna ('45)

Það var mikið fjör í fyrri hálfleik þegar Levante fékk Osasuna í heimsókn í spænsku deildinni.

Osasuna náði tveggja marka forystu en Levante náði að svara og jafna metin með tveimur mörkum á tveggja mínútna kafla.

Það kom upp skondið atvik undir lok fyrri hálfleiks þegar Sergio Herrera, markvörður Osasuna, var rekinn af velli.

Hann kom út á móti Carlos Espi sem fékk langa sendingu fram. Herrera reyndi að skalla boltann frá en hitti ekki og boltinn fór í höndina á honum.

Levante náði að nýta sér liðsmuninn þegar Karl Etta Eyong skoraði sigurmarkið á lokamínútu venjulegs leiktíma.

Levante er í 18. sæti með 36 stig, stigi frá öruggu sæti. Osasuna tapaði hins vegar dýrmætum stigum í Evrópubaráttunni. Liðið er í 10. sæti með 42 stig, tveimur stigum á eftir Getafe sem er í 7. sæti sem gefur sæti í Sambandsdeildinni á næstu leiktíð.


Sergio Herrera (Osasuna goalkeeper) great red card vs Levante
by
u/977x in
soccer

Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 38 31 1 6 95 36 +59 94
2 Real Madrid 38 27 5 6 77 35 +42 86
3 Villarreal 38 22 6 10 72 46 +26 72
4 Atletico Madrid 38 21 6 11 62 44 +18 69
5 Betis 38 15 15 8 59 48 +11 60
6 Celta 38 14 12 12 53 48 +5 54
7 Getafe 38 15 6 17 32 38 -6 51
8 Vallecano 38 12 14 12 41 44 -3 50
9 Valencia 38 13 10 15 46 55 -9 49
10 Real Sociedad 38 11 13 14 59 61 -2 46
11 Espanyol 38 12 10 16 43 55 -12 46
12 Athletic 38 13 6 19 43 58 -15 45
13 Elche 38 10 13 15 49 57 -8 43
14 Alaves 38 11 10 17 44 56 -12 43
15 Sevilla 38 12 7 19 46 60 -14 43
16 Osasuna 38 11 9 18 44 50 -6 42
17 Mallorca 38 11 9 18 47 57 -10 42
18 Levante 38 11 9 18 47 61 -14 42
19 Girona 38 9 14 15 39 55 -16 41
20 Oviedo 38 6 11 21 26 60 -34 29
Slapp
banner
banner