Haukar 2 - 0 Keflavík
1-0 Valgerður Ósk Valsdóttir ('36 )
2-0 Anita Lind Daníelsdóttir ('76 , Sjálfsmark)
1-0 Valgerður Ósk Valsdóttir ('36 )
2-0 Anita Lind Daníelsdóttir ('76 , Sjálfsmark)
Haukar fengu Keflvíkinga í heimsókn í fyrsta leik í 2. umferð Lengjudeildar kvenna í kvöld.
Það var markaveisla í leikjum beggja liða í fyrstu umferð. Haukar unnu Gróttu 5-4 og Keflavík vann Tindastól 8-2.
Valgerður Ósk Valsdóttir sá til þess að Haukar voru með forystuna í hálfleik en hún skoraði eftir rúmlega hálftíma leik. Anita Lind Daníelsdóttir varð síðan fyrir því óláni að skora sjálfsmark sem innsiglaði sigur Hauka.
Haukar eru því á toppnum og Keflavík í 2. sæti en FHL, HK og KR eru með þrjú stig og eiga leik til góða um helgina.



