Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
Ray Anthony: Grenjum í kvöld
Maggi: Ákall á Mosfellinga
Brynjar Björn: Það er klárt brot á Óla
Heimir Guðjóns: Hann á skilið freyðivín frá mér
Badu: Ég held að ástæðan sé mun einfaldari en metnaðarleysi
„Þeir skapa nánast ekki færi í fyrri hálfleik, skora samt tvö mörk úr þessum hornum sínum"
Mattías Kjeld: Valur gat ekki lofað mér mínútum
Nenad: Búið að vera töfrasirkús
Jóhann Birnir: Eitthvað kæruleysi hjá öllum
„Þá er ég ekki það grænn og vitlaus að ég get alltaf hrósað okkur fyrir frábært spil og ægilega óheppnir"
Borja: Allt of dýrt að fá á sig mörk úr föstum leikatriðum
Gunnar Heiðar: Þetta er erfiðasta fæðing sem ég hef séð
Davíð Smári: Miklar tilfinningar að keyra inn í bæinn
Birnir Snær: Reynir mest á hausinn
Arnór Ingvi: Allt á uppleið í KR og í Vesturbænum
Óskar Hrafn: Ber mikla virðingu fyrir körfu- og handboltaliðum
Hemmi: Ég er grautfúll
Gylfi: Mjög góðir þó að staðan hjá þeim er eins og hún er
Sölvi: Þarf að setja meiri pressu á Kára
Jökull: Stuðningsmennirnir eiga meira skilið
   fös 08. maí 2026 22:34
Viktor Ingi Valgarðsson
Rúnar Kristins: Sjaldan fagnað eins mikið og núna
Rúnar Kristinsson þjálfari Fram
Rúnar Kristinsson þjálfari Fram
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fram fékk heimsókn frá Val í kvöld. Leikurinn var partur af 6.umferð Bestu Deildar Karla. 

3-2 sigur Fram var niðurstaðan í fjörugum leik á Lambhagavellinum. Mark á lokamínútu tryggði Fram öll stigin og þriðja sigurinn í röð.


Lestu um leikinn: Fram 3 -  2 Valur

„Stórkostleg tilfinning, held ég hef sjaldan fagnað eins mikið og núna. Mér fannst við eiga skilið að vinna þennan leik og hefði verið gríðarlega ósáttur við jafntefli."

Fram lenti tvisvar sinnum undir í fyrri hálfleik en 2-2 var staðan þegar liðin mættu í seinni hálfleikinn.

„Gríðarlega sáttur með trúna sem er í hópnum, höfum lært svolítið af Þórs leiknum. Menn eru fljótir að núll stilla sig."

Þriðji sigurinn í röð og þriðji leikurinn með sama byrjunarlið.

„Það er mikil samkeppni og karakterinn góður og ég er mjög ánægður með framlag allra. Erum búnir að fá þrjú mörk af bekknum í sex leikjum. Þannig við erum að fá hjálp frá öllum. Góð liðsheild sem við erum búnir að skapa."

Framundan hjá Fram liðinu er annar hörku leikur gegn toppliði KR. Um þann leik hafði Rúnar Kristinsson, fyrrum þjálfari KR þetta að segja: „Það er rúm viku og við förum að leggjast yfir það hvernig er hægt að stríða þeim og gera þeim lífið leitt. Þeir eru búnir að vinna alla leikina sína, ótrúleg byrjun og þeir eru hrikalega flottir. Spennandi verkefni fyrir okkur." 


Slapp