Heiðar Birnir Torleifsson hefur verið ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Vestra.
Hann var yfirþjálfari hjá féelaginu fram á síðasta haust en hann mun hefja störf sem tæknilegur ráðgjafi þann 1. júní.
Hann var yfirþjálfari hjá féelaginu fram á síðasta haust en hann mun hefja störf sem tæknilegur ráðgjafi þann 1. júní.
Tilkynning Vestra
Heiðar Birnir Torleifsson hefur verið ráðinn tímabundið í starf tæknilegs ráðgjafa hjá félaginu. Hann mun hefja formlega störf 1.júní en er nú þegar farinn að láta sjá sig á Kerecisvellinum. Heiðar Birnir er öllum hnútum kunnugur hjá Vestra eftir að hafa verið yfirþjálfari félagsins fram á síðasta haust.
Helsta verkefni Heiðars er að styðja við ungan og efnilegan þjálfarahóp félagsins. Við minnum á að öll hefðbundin knattspyrnutengd mál fara ennþá í gegnum þjálfara flokkana og yfirþjálfara.
Áfram Vestri




