Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
Kennie: Líður eins og ég sé 25 ára
Ólafur Ingi: Þurfum að vinna í andlega þættinum
Rúnar Kristins: Búnir að vinna í þessu í tvö og hálft ár
Svekktur fyrirliði Vals: Vorum ekki nógu góðar til að verðskulda sigur
Lárus Orri: Þá ertu annaðhvort í fallbaráttu eða í baráttu um Evrópusæti
Jói Kalli: Auðvitað er þetta á minni ábyrgð
Böddi: Hjálpaði til að FH var í einhverjum nýjum lit af búning
Skoraði sigurmarkið og grínaðist með samherjann - „Rósey hendir einhverju góðu á hana“
Ray Anthony: Grenjum í kvöld
Maggi: Ákall á Mosfellinga
Brynjar Björn: Það er klárt brot á Óla
Heimir Guðjóns: Hann á skilið freyðivín frá mér
Badu: Ég held að ástæðan sé mun einfaldari en metnaðarleysi
„Þeir skapa nánast ekki færi í fyrri hálfleik, skora samt tvö mörk úr þessum hornum sínum"
Mattías Kjeld: Valur gat ekki lofað mér mínútum
Nenad: Búið að vera töfrasirkús
Jóhann Birnir: Eitthvað kæruleysi hjá öllum
„Þá er ég ekki það grænn og vitlaus að ég get alltaf hrósað okkur fyrir frábært spil og ægilega óheppnir"
Borja: Allt of dýrt að fá á sig mörk úr föstum leikatriðum
Gunnar Heiðar: Þetta er erfiðasta fæðing sem ég hef séð
   lau 09. maí 2026 00:13
Sigurjón Árni Torfason
Gísli Eyjólfs: Við þurfum að fara vakna
Gísli Eyjólfs
Gísli Eyjólfs
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍA tapaði í kvöld 3-1 fyrir Keflvíkingum í 6. umferð Bestu deildar karla. Þetta var þriðji tapleikur ÍA í sumar.

Lestu um leikinn: ÍA 1 -  3 Keflavík

Gísli Eyjólfsson var svekktur eftir leik.

„Það er örugglega dálítið mikið sem klikkaði en ég veit það bara ekki almennilega núna, þurfum að fara aðeins yfir þetta og pínu líta í spegil allir leikmenn. Þetta er bara ekki nógu gott."

Skagamenn voru ekki góðir sérstaklega í seinni hálfleik núna í kvöld.

„Ég er bara ekki með svörin fyrir þig því miður fannst við alltaf vera eftir á og lélegir í einvígum. Þetta var bara ekki góður leikur á okkar hálfu í dag."

Það var búist við miklu frá ÍA í sumar en þeir hafa ekki farið vel af stað.

„Ég held að allir þurfa gera betur og step up, það er of mikið búið af þessu móti og við þurfum að fara vakna. Þetta er alls ekki nógu gott og viljum gera betur en þetta."

Skagamenn styrktu sig vel í vetur og var spáð ofarlega í töflunni.

„Erum með fínan hóp og mjög gott lið. Við erum ekki að ná þessari stigasöfnun það er ekki seinna vænna að fara drífa sig að safna þessum stigum áður en það verður of seint."
Slapp
banner
banner