Manchester United 2 - 0 Atlético Madríd (5-0, samanlagt)
1-0 Julia Zigiotti Olme ('28 )
2-0 Jessica Park ('41 )
1-0 Julia Zigiotti Olme ('28 )
2-0 Jessica Park ('41 )
Manchester United tryggði sig áfram í 8-liða úrslit í kvennaflokki í Meistaradeild Evrópu í kvöld með því að leggja Atlético Madríd að velli, 2-0, á Leigh Sports Village-vellinum í Leigh.
United-konur unnu sannfærandi 3-0 sigur í fyrri leiknum og var aðeins formsatriði fyrir liðið að klára dæmið í kvöld.
Það gerðu þær í fyrri hálfleik með mörkum frá Juliu Zigiotti Olme og Jessu Park á þrettán mínútna kafla.
Man Utd komið í 8-liða úrslit þar sem það mætir Glódísi Perlu Viggósdóttir og stöllum hennar í Bayern München en leikirnir eru spilaðir 24. mars og 1. apríl næstkomandi.
Athugasemdir


