Bukayo Saka hefur framlengt samning sinn við enska úrvalsdeildarfélagið Arsenal til fimm ára eða til 2031, en þetta staðfestir félagið á heimasíðu sinni í dag.
Saka, sem er 24 ára gamall, gekk í raðir félagsins þegar hann var átta ára gamall.
Englendingurinn hefur spilað mikilvæga rullu í liði Arsenal síðan hann lék sinn fyrsta leik með aðalliðinu árið 2018.
Hann á 297 leiki og komið að 156 mörkum með Arsenal, en hann er hluti af leiðtogahópi Arsenal og er fyrirliði þegar Martin Ödegaard er ekki með.
Saka skrifaði í dag undir fimm ára samning við Arsenal eða til 2031.
Vængmaðurinn er farinn að gera það að hefð að skora gegn Wolves og framlengja samning sinn á svipuðum tíma. Hann skoraði í 2-2 jafnteflinu í gær og gerði það einnig þegar hann framlengdi árin 2020 og 2023.
„Mér líður frábærlega. Þetta er stórkostlegt augnablik fyrir mig og fjölskyldu mína, og finn ég fyrir óendanlegri gleði í að halda vegferð minni áfram hjá þessu félagi. Þetta var auðveld skuldbinding og vonast ég til að vinna allt sem hægt er að vinna með liðinu,“ sagði Saka.
Committing his future to north London ????
— Arsenal (@Arsenal) February 19, 2026
Bukayo Saka has penned a new contract with the club ????
Athugasemdir



