Draumastarfið og vill vera áfram til lengri tíma
Michael Carrick, bráðabirgðastjóri Manchester United, hefur ekki farið leynt með hrifningu sína á enska miðjumanninum Kobbie Mainoo sem spilar nú stóra rullu hjá United eftir að hafa verið í kuldanum undir Ruben Amorim.
Mainoo er aðeins 20 ára gamall og hefur sýnt burði sína, en hann dalaði aðeins undir Amorim.
Miðjumaðurinn fann sig engan veginn í leikkerfi Amorim, en er að finna sitt gamla sjálf undir Carrick.
„Ég byrjaði að vinna með Kobbie Mainoo þegar ég var að vinna í þjálfaragráðunum, þá var hann 13 eða 14 ára gamall,“ sagði Carrick.
„Það sem Kobbie hefur afrekað á svona ungum aldri er hreint út sagt ótrúlegt. Við gleymum því að hann er enn svo ungur.“
„Ég er mjög hrifinn af honum og það var ekki stór ákvörðun að spila honum!“ sagði Carrick ennfremur.
Man Utd hefur ekki tapað leik síðan Mainoo kom inn í byrjunarliðið, en það hefur unnið fjóra og gert eitt jafntefli. United er í baráttu um Meistaradeildarsæti.
Carrick vonast til að halda starfinu til frambúðar en hann nýtur sín í botn sem stjóri félagsins.
„Þetta er draumastarfið fyrir mér. Ég nýt þess og elska það sem ég er að gera. Ég er mjög lánsamur.“
„Það er ekki ég sem ákveð hversu lengi þetta verður, en ég elska að vera hér og meðan ég er hér mun ég gefa allt mitt. Ég er alltaf að hugsa til lengri tíma þegar ég hugsa um hag félagsins,“ sagði Carrick.
Athugasemdir


