PSG á eftir Haaland - Gordon orðaður við tvo risa - Trafford tekur Villa fram yfir Newcastle - Hvert fer Bernardo?
   fös 20. febrúar 2026 14:13
Brynjar Ingi Erluson
Guardiola nefnir hvað þarf að gera til að útrýma rasisma - „Lang mikilvægasta fólkið í samfélaginu“
Pep Guardiola
Pep Guardiola
Mynd: EPA
Pep Guardiola, stjóri Manchester City á Englandi, segist hafa fundið lausnina við kynþáttafordómum í ljósi umræðunnar eftir leik Real Madrid og Benfica í Meistaradeildinni á dögunum.

Vinicius Junior sakaði Argentínumanninn Gianluca Prestianni um að hafa beitt hann kynþáttaníði í leiknum.

Brassinn fór til dómarans sem stöðvaði leikinn, en ekki var hægt að sanna það á staðnum hvað Prestianni sagði þar sem hann lyfti treyjunni yfir varir sínar þegar hann lét einhver orð falla.

Málið er til rannsóknar hjá UEFA en Prestianni gæti átt yfir höfði sér langt vann verði hann fundinn sekur um kynþáttafordóma í garð Vinicius.

Guardiola var spurður út í þetta atvik á fréttamannafundi í dag.

„Ég sagði í síðustu viku að litarháttur eða fæðingarstaður gerir okkur ekki betri eða verri. Það er enn langt í land og mikil vinna sem þarf að gera. Þetta er ekki bara í fótbolta heldur í samfélaginu. Rasismi er alls staðar. Þykist þú halda að rasismi er bara húðliturinn? Það er hegðunin sem er rasísk og hvernig þú heldur af mörgum ástæðum að þú sért betri en aðrir,“ sagði Guardiola sem er með lausnina við vandamálinu.

„Í gegnum skólakerfið. Gefið kennurunum há laun. Þannig nærðu að eiga við þetta. Í skólanum, ekki í fótboltanum. Það eru kennararnir og læknarnir sem verða að vera best í þessu og er lang mikilvægasta fólkið í samfélaginu, ekki stjórarnir.,“ sagði Guardiola.
Athugasemdir
banner
banner
banner