Spænska stórveldið Real Madrid hefur sent UEFA, fótboltasambandi Evrópu, öll gögn varðandi meint kynþáttaníð Gianluca Prestianni í garð Vinicius Jr í leik liðanna í Meistaradeild Evrópu.
Vinicius Jr skoraði frábært mark og fagnaði því upp við hornfána áður en hann lenti upp á kant við Prestianni. Sá argentínski lyfti síðan í kjölfarið treyjunni upp fyrir varir sínar og lét einhver orð falla.
Í kjölfarið hljóp Vinicius til dómarans og sakaði þar Prestianni um kynþáttafordóma. Samkvæmt reglunum verður dómarinn að stöðva leikinn, sem var gert, en hann var settur aftur í gang rúmum tíu mínútum síðar.
Mikið hefur verið rætt og ritað um þetta mál og hvað var sagt, en Real Madrid hefur að minnsta kosti sent öll gögn til UEFA.
„Varðandi atvikin sem áttu sér stað þriðjudaginn 17. febrúar í Meistaradeildarleik Real Madrid gegn Benfica vill félagið koma á framfæri að það hefur unnið verið í virku samstarfi með UEFA við rannsóknina eftir þessa óásættanlegu kynþáttafordóma sem áttu sér stað í þessum leik.“
„Real Madrid er þakklátt fyrir þennan einróma stuðning og ást sem Vinicius Jr, leikmaður félagsins, hefur fengið frá öllum heimshornum fótboltans. Real Madrid mun halda áfram að vinna með öllum viðeigandi stofnunum með það að markmiði að útrýma rasisma, ofbeldi og hatri í íþróttum og úr okkar samfélagi,“ segir í yfirlýsingu Real Madrid.
Athugasemdir



