Skoski miðjumaðurinn Scott McTominay segir fótboltann á leið í vitlausa átt alla vega miðað við það sem hann ólst upp við. Þetta sagði hann í viðtali við Corriere dello Sport.
McTominay er fæddur árið 1996 og sá því síðustu árin áður en fótbolti varð of tæknilegur.
Enska úrvalsdeildin var allt öðruvísi í byrjun aldarinnar. Þar fengu menn að sjá urmul af fljúgandi tæklingum, hita og var almennt meiri rígur á milli liða, en tímarnir eru öðruvísi í dag.
Helstu fyrirmyndir McTominay eru Zinedine Zidane, Darren Fletcher og Wayne Rooney, sem voru allir af gamla skólanum, og kannski eðlilegt að Skotinn sé á þessu máli.
„Fótbolti er að verða of aumur og mjúkur. Sumar ákvarðanir eru mjög aumar. Ég var ekki vanur þessari tilfinningu þegar ég var að alast upp.“
„Okkur var kennt að fara í heiðarlegar tæklingar af miklum krafti en nú getur minnsta snerting leitt að gulu spjaldi.“
„Það er ekki mitt að draga ályktanir, en það er of mikil athygli og viðkvæmni í fótbolta í dag,“ sagði McTominay við Corriere dello Sport.
Athugasemdir



