Enrique efstur á lista Man Utd - Hættir Pep hjá City í sumar? - Man Utd ætlar ekki að lána Rashford aftur til Barca
   fös 20. mars 2026 23:52
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikar kvenna: Afturelding rúllaði yfir Smára
Kvenaboltinn
Markaskorarar og markverðir Aftureldingar í kvöld.
Markaskorarar og markverðir Aftureldingar í kvöld.
Mynd: Afturelding
Mynd: GH Focus
Smári 0 - 5 Afturelding
0-1 Ísabella Eiríksd. Hjaltested ('3)
0-2 Adna Mesetovic ('59)
0-3 Maria Baska ('60)
0-4 Maria Baska ('71)
0-5 Maria Baska ('82)

Ísabella Eiríksdóttir Hjaltested skoraði eina mark fyrri hálfleiksins er Afturelding rúllaði yfir Smára í Lengjubikarnum fyrr í kvöld.

Ísabella skoraði snemma leiks og tókst hvorugu liði að bæta marki við fyrir leikhlé.

Í síðari hálfleik tvöfaldaði Adna Mesetovic forystu Mosfellinga áður en Maria Baska gerði út um viðureignina með þrennu.

Maria kom inn af bekknum í hálfleik og skoraði þrjú mörk á 22 mínútna kafla, þar sem hún lét ellefu mínútur líða á milli marka.

Liðin áttust við í eina leik kvöldsins í C-deild og er Afturelding með níu stig eftir þrjár fyrstu umferðirnar.

Smári er með tvö stig eftir fjórar umferðir.

Smári Þórdís Ösp Cummings Benediktsdóttir (m), Vala Katrín Guðmundsdóttir, Inga Júlíana Jónsdóttir, Harpa Karen N. Halldórsdóttir, Rebekka Rún Agnarsdóttir, Suzanna Sofía Palma Rocha, Eyrún Ísabella Aðalsteinsdóttir, Erna Katrín Óladóttir, Tara Dís Ármann, Edda María Einarsdóttir, Sóley Rut Þrastardóttir,
Varamenn Sigrún Gunndís Harðardóttir, Júlíana Hrefna Gunnarsdóttir, Irma Gunnþórsdóttir, Minela Crnac, Kristbjörg María Kjartansdóttir

Afturelding Ragna Lára Ragnarsdóttir (m), Hólmfríður Birna Hjaltested, Lilja Björk Gunnarsdóttir, Adna Mesetovic, Magðalena Ólafsdóttir, Tinna Guðjónsdóttir, Katla Ragnheiður Jónsdóttir, Alexandra Austmann Emilsdóttir, Hafdís María Einarsdóttir, Ísabella Eiríksd. Hjaltested, Karen Dæja Guðbjartsdóttir,
Varamenn Embla Sóley Árnadóttir (m), Berglind Bergsdóttir, Ingibjörg Guðný Guðmundsdóttir, Monika Piesliakaite, Sigrún Agnes Smáradóttir, Maria Baska, Steinunn Lind Hróarsdóttir
Lengjubikar kvenna - C-deild, riðill 2
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Afturelding 3 3 0 0 15 - 0 +15 9
2.    ÍR 3 2 1 0 7 - 6 +1 6
3.    Augnablik 2 1 0 1 2 - 1 +1 4
4.    Smári 4 0 2 2 5 - 11 -6 2
5.    Álftanes 4 0 3 1 2 - 13 -11 1
Athugasemdir
banner
banner