Belgi orðaður við Man Utd - Óskalisti Alonso ef hann tekur við Liverpool - Juventus veitir Arsenal samkeppni um Goretzka
banner
   mið 18. mars 2026 21:27
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hvað sagði Arne Slot eiginlega í hálfleik?
Liverpool er að valta yfir Galatasaray.
Liverpool er að valta yfir Galatasaray.
Mynd: EPA
Liverpool er að ganga af göflunum gegn Galatasaray í leik sem núna stendur yfir í Meistaradeildinni.

Fyrri leikurinn í Tyrklandi endaði 1-0 fyrir Galatasaray og því hafði Liverpool verk að vinna í kvöld.

Staðan í hálfleik var 1-0 á Anfield eftir mark Dominik Szoboszlai, en á fyrstu 15 mínútum seinni hálfleiks hefur nánast allt gengið upp hjá Liverpool.

Mohamed Salah klikkaði á vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks en hann er búinn að vera frábær í seinni hálfleik, búinn að skora og leggja upp. Staðan er orðin 4-0 og það er meira að segja búið að dæma mark af Liverpool vegna rangstöðu.

Hvað sagði Arne Slot, stjóri Liverpool, eiginlega við sína menn í hálfleik?
Athugasemdir
banner
banner