Það voru óvænt úrslit í norsku bikarkeppninni í dag þegar Noregsmeistarar Viking mættu Álasundi í Íslendingaslag.
Hilmir Rafn Mikaelsson var í byrjunarliði Viking og Davíð Snær Jóhannsson var í byrjunarliði Álasunds.
Hilmir Rafn Mikaelsson var í byrjunarliði Viking og Davíð Snær Jóhannsson var í byrjunarliði Álasunds.
Hilmir Rafn lagði upp mark fyrir Noregsmeistarana snemma leiks og var staðan 1-0 í hálfleik. En í seinni hálfleik gerði Álasund sér lítið fyrir og kom til baka.
Hilmir Rafn spilaði 71 mínútu og Davíð Snær lék 88 mínútur í þessum sterka sigri sem kom Álasundi í undanúrslit bikarsins. Ólafur Guðmundsson var ónotaður varamaður hjá Álasundi í leiknum.
Aron Einar spilaði í slæmu tapi
Í Katar lék Aron Einar Gunnarsson allan leikinn hjá Al-Gharafa í 1-4 tapi gegn Al Ahli Doha á heimavelli.
Aron Einar fékk gult spjald stuttu eftir að Yacine Brahimi kom Al-Gharafa yfir í fyrri hálfleik en í seinni hálfleik fór allt á hliðina hjá Aroni og félögum.
Þetta var hrikalegt tap fyrir Al-Gharafa sem er fjórum stigum frá toppnum. Al Ahli Doha er aftur á móti í fallbaráttu.
Ásdís og Bergrós áttu leiki
Í Portúgal kom Ásdís Karen Halldórsdóttir inn á í tapi Braga gegn Benfica í bikarnum, 4-1.
Og í Austurríki spilaði Bergrós Ásgeirsdóttir allan leikinn í markalausu jafntefli Aarau gegn Rapperswil-Jona. Bergrós og stöllur hennar eru þremur stigum frá öruggu sæti í austurrísku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir



