Liverpool, Bayern München og Atletico Madrid eru komin áfram í átta-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu.
Liverpool tapaði fyrri leik sínum gegn Galatasaray í Tyrklandi en átti í litlum sem engum vandræðum í kvöld á Anfield.
Liverpool tapaði fyrri leik sínum gegn Galatasaray í Tyrklandi en átti í litlum sem engum vandræðum í kvöld á Anfield.
Staðan í hálfleik var 1-0 á Anfield eftir mark Dominik Szoboszlai, en á fyrstu 15 mínútum seinni hálfleiks gekk nánast allt upp hjá Liverpool.
Mohamed Salah klikkaði á vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks en hann var frábær í seinni hálfleik, skoraði og lagði upp. Hugo Ekitike var öflugur í leiknum og skoraði en Ryan Gravenberch var einnig á meðal markaskorara.
Það voru tvö mörk dæmd af Liverpool í seinni hálfleiknum en yfirburðirnir voru svakalegir í kvöld.
Bayern og Atletico léttilega áfram
Í hinum tveimur leikjum kvöldsins var það nokkuð ljóst fyrirfram hvaða lið væru að fara áfram. Bayern München og Atletico Madrid voru með mikla forystu fyrir leiki kvöldsins.
Atletico vann fyrri leik sinn gegn Tottenham á heimavelli, 5-2, en Spurs beit aðeins frá sér í kvöld og tókst að vinna sinn fyrsta leik undir stjórn Igor Tudor.
Þetta var ágætis leikur hjá Tottenham en ekki nóg til þess að komast áfram í þessari keppni. Kannski er það bara best fyrir Spurs þar sem liðið er í mikilli fallbaráttu í ensku úrvalsdeildinni.
Bayern München gerði alls tíu mörk í einvígi sínu við Atalanta frá Ítalíu. Harry Kane skoraði tvennu í kvöld og Bayern eru til alls líklegir í þessari keppni.
Liverpool 4 - 0 Galatasaray (4-1)
1-0 Dominik Szoboszlai ('25 )
1-0 Mohamed Salah ('45 , Misnotað víti)
2-0 Hugo Ekitike ('52 )
3-0 Ryan Gravenberch ('53 )
4-0 Mohamed Salah ('62 )
Bayern 4 - 1 Atalanta (10-1)
0-0 Harry Kane ('24 , Misnotað víti)
1-0 Harry Kane ('25 , víti)
2-0 Harry Kane ('54 )
3-0 Lennart Karl ('56 )
4-0 Luis Diaz ('70 )
4-1 Lazar Samardzic ('86 )
Tottenham 3 - 2 Atletico Madrid (5-7)
1-0 Randal Kolo Muani ('30 )
1-1 Julian Alvarez ('47 )
2-1 Xavi Simons ('52 )
2-2 David Hancko ('75 )
3-2 Xavi Simons ('90 , víti)
Athugasemdir


