Dyche að taka við Forest - Chelsea vill Aghehowa - Njósnarar Barcelona sáu Greenwood fara á kostum
   mán 20. október 2025 11:57
Elvar Geir Magnússon
Sjáðu markið sem Hákon skoraði eftir sendingu Giroud
Mynd: EPA
Hákon Arnar Haraldsson var á skotskónum þegar Lille vann Nantes í frönsku deildinni í gær.

Hann kom liðinu yfir snemma leiks eftir undirbúning Olivier Giroud. Franski sóknarmaðurinn fékk boltann inn á teignum og lagði boltann út á Hákon sem skoraði með góðu skoti í hornið.

Lille er í sjötta sæti frönsku deildarinnar en þetta var þriðja mark Hákonar í sjö deildarleikjum á tímabilinu. Þá skoraði hann í Evrópudeildarleik gegn Roma fyrir landsleikjagluggann.

Hann bar svo fyrirliðaband Íslands í leikjunum gegn Úkraínu og Frakklandi í undankeppni HM.



Athugasemdir
banner
banner
banner