Tveir leikmenn Njarðvíkur, þeir Oumar Diouck og Tómas Bjarki Jónsson, meiddust báðir illa á hné í 1–0 sigri liðsins á KA um helgina.
Um er að ræða fyrirliða Njarðvíkur og markahæsta leikmann liðsins á síðasta tímabili. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er óttast um möguleg krossbandaslit hjá báðum leikmönnum. Tómas fer í segulómskoðun síðar í dag.

„Þeir meiddust, það er alveg óvíst hversu slæm meiðslin eru. Það kemur í ljós á næstu dögum,“ segir Davíð Smári Lamude, þjálfari Njarðvíkur, í samtali við Fótbolta.net.
Er óttast um krossbandaslit? „Ekkert frekar, maður er alltaf stressaður þegar það er hné. Þetta ætti að koma í ljós fyrir helgi.“
Leikurinn fór fram í Nettóhöllinni en fyrr í vetur sleit Viktor Elmar Gautason, leikmaður Keflavíkur, krossbönd á sama velli.
Athugasemdir