Rodri eftirsóttur - Liverpool vill tyrkneskan varnarmann - Julian Alvarez aftur til Englands? - Man Utd og Arsenal berjast um varnarmann
banner
   mán 23. febrúar 2026 14:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Allt sauð upp úr er ÍBV mætti spænsku liði
Vicente Valor skoraði eina mark leiksins.
Vicente Valor skoraði eina mark leiksins.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍBV 1 - 0 Minera
1-0 Vicente Valor

ÍBV mætti í dag spænska liðinu Club Deportiva Minera á Pinatar á Spáni. ÍBV er þar í æfingaferð, en í síðustu viku lögðu Eyjamenn danska liðið Álaborg að velli.

Spænski miðjumaðurinn Vicente Valor skoraði eina mark leiksins en flautað var af í hálfleik þar sem allt hafði soðið upp úr.

Samkvæmt þeim upplýsingum sem Fótbolti.net hefur fengið voru Spánverjarnir blóðheitir og vildu frekar skiptast á höggum en að spila leikinn. Minera er í fjórðu efstu deild á Spáni, Segunda Federacion.

Tveir leikmenn léku á reynslu með ÍBV í leiknum. Vinstri kantmaðurinn Pablo Aguilera Simon er annar þeirra en hann lék með Fylki á síðasta tímabili. Hinn heitir, eða er kallaður, Pisco, spilar sem varnarsinnaður miðjumaður en Fótbolti.net hefur ekki fengið frekari upplýsingar um leikmanninn.
Athugasemdir
banner
banner