Rodri eftirsóttur - Liverpool vill tyrkneskan varnarmann - Julian Alvarez aftur til Englands? - Man Utd og Arsenal berjast um varnarmann
   mán 23. febrúar 2026 10:21
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Íslendingur spilar með U17 landsliði Mexíkó
Marcelo Ingi Avalos.
Marcelo Ingi Avalos.
Mynd: Mexíkóska fótboltasambandið
Marcelo Ingi Avalos er efnilegur markvörður sem á rætur að rekja til Íslands.

Hann spilar með U17 landsliði Mexíkó sem var að tryggja sér sæti á HM U17 liða sem fer fram í Katar síðar á þessu ári.

Hann er fæddur árið 2009 og þykir efnilegur, en hann getur valið að spila fyrir þrjú landslið; Mexíkó, Ísland og Bandaríkin. Móðir hans er íslensk.

Þessi ungi og efnilegi markvörður hefur alist upp í Bandaríkjunum og er núna í akademíu Philadelphia Union.

Marca fjallaði um hann í fyrra og í þeirri umfjöllun stóð: „Þrátt fyrir að vera ungur að árum er hann hávaxinn og hefur sýnt mikla hæfileika með hröðum fótum, öflugum viðbrögðum og góðri staðsetningu er hann ver mark sitt."

Hann fór í fyrra til reynslu hjá ítalska úrvalsdeildarfélaginu Bologna en íslenskar rætur hans gera honum auðveldara fyrir að semja í Evrópu ef hann kýs að gera það.

Það er spurning hvort Marcelo muni í framtíðinni spila fyrir Ísland en hann hefur úr þremur möguleikum að velja.

Þess má geta að Ísland á að spila vináttulandsleik við Mexíkó síðar í þessari viku.
Athugasemdir
banner
banner
banner