Barcelona langar í Haaland - Tonali og Fernandes á blaði Man Utd - Klopp gæti tekið við Þýskalandi
   lau 21. febrúar 2026 21:46
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Jafnt í Sardiníu
Mynd: EPA
Cagliari 0 - 0 Lazio

Cagliari og Lazio áttust við í síðasta leik dagsins í efstu deild ítalska boltans og úr varð jafn slagur.

Cagliari fékk bestu færin í bragðdaufum fyrri hálfleik en hvorugu liði tókst að skora.

Liðin sköpuðu sér voða lítið allan leikinn og fékk Lazio sitt besta færi á lokamínútunum, eftir að Yerry Mina braut af sér og fékk að líta seinna gula spjaldið sitt.

Manni fleiri tókst Lazio að eiga tvær skottilraunir en þær sköpuðu ekki mikla hættu, svo niðurstaðan var markalaust jafntefli eftir afar tíðindalítinn leik.

Lazio er í bráðri hættu á að missa af evrópubaráttunni á meðan Cagliari er í þægilegri stöðu átta stigum fyrir ofan fallsvæðið, aðeins fimm stigum eftir Lazio.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 28 22 1 5 64 22 +42 67
2 Milan 28 17 9 2 44 20 +24 60
3 Napoli 28 17 5 6 43 29 +14 56
4 Como 28 14 9 5 46 21 +25 51
5 Roma 28 16 3 9 38 21 +17 51
6 Juventus 28 14 8 6 50 28 +22 50
7 Atalanta 28 12 10 6 39 26 +13 46
8 Bologna 28 11 6 11 37 34 +3 39
9 Sassuolo 28 11 5 12 35 38 -3 38
10 Lazio 28 9 10 9 28 28 0 37
11 Udinese 28 10 6 12 33 41 -8 36
12 Parma 29 8 10 11 21 36 -15 34
13 Torino 29 9 6 14 32 50 -18 33
14 Genoa 28 7 9 12 34 40 -6 30
15 Cagliari 28 7 9 12 30 38 -8 30
16 Lecce 28 7 6 15 20 37 -17 27
17 Fiorentina 28 5 10 13 30 42 -12 25
18 Cremonese 28 5 9 14 22 40 -18 24
19 Verona 28 3 9 16 22 49 -27 18
20 Pisa 28 1 12 15 20 48 -28 15
Athugasemdir
banner