Portúgalski miðjumaðurinn Joao Neves er búinn að gefa munnlegt samþykki fyrir nýjum samningi við franska risaveldið Paris Saint-Germain.
Núverandi samningur Neves gildir í þrjú og hálft ár til viðbótar en PSG bauð honum nýjan samning til að verðlauna hann fyrir frábæra frammistöðu með liðinu.
Neves er aðeins 21 árs gamall en sinnir lykilhlutverki hjá PSG. Hann reyndist afar mikilvægur er PSG hampaði langþráðum meistaradeildartitli í fyrra og mun nýi samningurinn gilda þar til í júní 2030.
Neves er með 20 landsleiki að baki fyrir Portúgal þrátt fyrir ungan aldur og gæti orðið besti miðjumaður í heimi með þessu áframhaldi.
Athugasemdir




