Rodri eftirsóttur - Liverpool vill tyrkneskan varnarmann - Julian Alvarez aftur til Englands? - Man Utd og Arsenal berjast um varnarmann
   þri 24. febrúar 2026 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Neville: Finnst United eiga ráða mann úr hæsta klassa
Mynd: EPA
Gary Neville, fyrrum leikmaður Man Utd, vonast til að félagið muni ráða reynslumikinn stjóra næsta sumar. Michael Carrick tók við sem bráðabirgðastjóri út tímabilið eftir að Ruben Amorim var rekinn og liðið er taplaust undir hans stjórn.

Það hefur gengið illa hjá Man Utd að festa sig í sessi sem eitt af bestu liðum Englands undanfarin ár en óreyndir stjórar á borð við Erik ten Hag og Amorim hafa ekki náð að mæta væntingum félagsins og stuðningsmanna liðsins.

„Ég er ekki á móti því að Carrick yrði ráðinn, ég elska hann og tel að hann hafi unnið frábært starf til þessa. En mér finnst að Man Utd ætti að ráða mann úr hæsta klassa," sagði Neville.

„Þeir hafa haft unga og óreynda stjóra í síðustu tvö skipti. Ole Gunnar Solskjær kom inn áður sem fyrrverandi leikmaður og það virkaði ekki að lokum. Svo ég tel að það sé rétti kosturinn að taka eins mikla áhættu og mögulegt er.“
Athugasemdir
banner
banner