Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   sun 22. febrúar 2026 17:36
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Meistararnir aftur á toppinn - Sevilla fjarlægist fallbaráttuna
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Tveimur fyrstu leikjum dagsins er lokið í spænska boltanum þar sem Spánarmeistarar Barcelona endurheimtu toppsætið með þægilegum sigri.

Marc Bernal og Frenkie de Jong skoruðu í fyrri hálfleik áður en Fermín López innsiglaði 3-0 sigur með svakalegu marki á lokakaflanum. Sjá hér. Joao Cancelo, Eric García og Lamine Yamal gáfu stoðsendingarnar.

Börsungar voru talsvert sterkari aðilinn og lentu ekki í vandræðum gegn fallbaráttuliði Levante, sem situr í næstneðsta sæti deildarinnar. Barca er með 61 stig eftir 25 umferðir, einu stigi fyrir ofan Real Madrid sem tapaði óvænt gegn Osasuna í gær.

Fyrr í dag áttust Getafe og Sevilla við í neðri hlutanum og lentu heimamenn í vandræðum þegar Djene var rekinn af velli með beint rautt spjald í fyrri hálfleik.

Leikurinn var tíðindalítill og jafn en gestunum frá Sevilla tókst að skora eina mark leiksins á 64. mínútu. Djibril Sow var þar á ferðinni eftir góða sókn Sevilla sem Adnan Januzaj, fyrrum leikmaður Manchester United, byrjaði með góðri sendingu inn völlinn frá hægri kanti.

Tíu leikmenn Getafe vörðust vel í leiknum en sköpuðu ekki mikla hættu, svo lokatölur urðu 0-1. Liðin eru jöfn með 29 stig eftir 25 umferðir, aðeins fimm stigum fyrir ofan fallsvæðið.

Barcelona 3 - 0 Levante
1-0 Marc Bernal ('4 )
2-0 Frenkie de Jong ('32 )
3-0 Fermin Lopez ('81 )

Getafe 0 - 1 Sevilla
0-1 Djibril Sow ('64 )
Rautt spjald: Djene, Getafe ('26)
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 25 20 1 4 67 25 +42 61
2 Real Madrid 25 19 3 3 54 21 +33 60
3 Villarreal 24 15 3 6 45 26 +19 48
4 Atletico Madrid 25 14 6 5 42 23 +19 48
5 Betis 25 11 9 5 40 30 +10 42
6 Espanyol 25 10 5 10 31 37 -6 35
7 Celta 24 8 10 6 32 27 +5 34
8 Athletic 25 10 4 11 29 35 -6 34
9 Osasuna 25 9 6 10 30 29 +1 33
10 Real Sociedad 25 8 8 9 37 38 -1 32
11 Sevilla 25 8 5 12 32 39 -7 29
12 Getafe 25 8 5 12 20 29 -9 29
13 Girona 24 7 8 9 24 38 -14 29
14 Vallecano 24 6 8 10 22 31 -9 26
15 Alaves 24 7 5 12 21 30 -9 26
16 Valencia 24 6 8 10 25 37 -12 26
17 Elche 25 5 10 10 32 37 -5 25
18 Mallorca 24 6 6 12 29 39 -10 24
19 Levante 25 4 6 15 26 44 -18 18
20 Oviedo 24 3 8 13 16 39 -23 17
Athugasemdir
banner
banner