Umspilið fyrir 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar heldur áfram í kvöld. Núna kemur í ljós hvaða lið eru þau fyrstu fjögur sem komast í gegn. Leikur Atletico Madrid og Club Brugge hefst 17:45 en hinir leikir byrja klukkan 20:00.
Meistaraspáin er skemmtileg keppni sem er spiluð með fram útsláttarkeppninni. Sérfræðingar í ár eru Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar í Bestu deild kvenna, og Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavík/Njarðvíkur í sömu deild. Aðili frá Fótbolta.net spáir einnig í leikina. Spáð er um úrslit allra leikja í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar. Fyrir hárréttar lokatölur fást þrjú stig en eitt stig ef rétt tákn er á leiknum.
Svona er spáin fyrir leiki kvöldsins:
Meistaraspáin er skemmtileg keppni sem er spiluð með fram útsláttarkeppninni. Sérfræðingar í ár eru Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar í Bestu deild kvenna, og Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavík/Njarðvíkur í sömu deild. Aðili frá Fótbolta.net spáir einnig í leikina. Spáð er um úrslit allra leikja í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar. Fyrir hárréttar lokatölur fást þrjú stig en eitt stig ef rétt tákn er á leiknum.
Svona er spáin fyrir leiki kvöldsins:
Gylfi Tryggvason
Atletico Madrid 3 - 1 Club Brugge (3-3)
Atletico kemst í 2-0. Club Brugge minnka muninn í seinni. Þeir sækja og sækja í leit að jöfnunarmarkinu en Atletico refsa með skyndisókn af gamla skólanum.
Leverkusen 1 - 1 Olympiakos (2-0)
Þetta einvígi náði eiginlega að verða minna spennandi en það var fyrir fyrri leikinn. Hélt það væri ekki hægt. Leverkusen áfram.
Inter 2 - 1 Bodø/Glimt (1-3)
Einhverjir mögnðustu Vetrarólympíuleikar seinni ára að baki. Takk Gunni Birgis. Klæbo kenndi okkur að allt er hægt. Bodö klára þetta verðskuldað. Noregur er einfaldlega betra en Ítalía í dag.
Newcastle 3 - 0 Qarabag (6-1)
Gordon skorar öll mörkin og ég vil ekki heyra orði á það minnst.
Óskar Smári Haraldsson
Atletico Madrid 2 - 0 Club Brugge (3-3)
Óvænt 3-3 í síðasta leik, 2-0 öruggur heimasigur í kvöld. Þægilegur 1 hérna.
Bayer Leverkusen 0 - 0 Olympiakos (2-0)
Leverkusen komnir í fín mál eftir fyrri leikinn. Ég minni á að Olympiakos eru einum Mirallas frá þessu og það verður engin breyting á því í kvöld. Steindautt 0-0 og Quansah verður maður leiksins.
Inter 1 - 0 Bodö/Glimt (1-3)
Þetta norska ævintýri er að fara halda áfram. Inter munu merja 1-0 sigur sem mun þó ekki duga til að fara áfram. Það þarf að fara framleiða þáttaröð um þetta Bodö project.
Newcastle 3 - 0 Qarabag (6-1)
Þetta er einfaldur og þægilegur heimasigur. Gylfi Tryggva spáði hárrétt fyrir að Anthony Gordon yrði aðalmaðurinn í fyrri viðureigninni. Ég tek reyndar ekkert út úr því annað en að Gylfi sé ennþá með hann í Fantasy sé ákveðin þrjóska sem ég ætla bara að bera virðingu fyrir. Hann mun skora þrjú í kvöld og Gylfi setur fyrirliðabandið á hann í Fantasy fyrir sterk fjögur stig gegn Everton í næstu umferð.
Fótbolti.net - Sölvi Haraldsson
Atletico Madrid 2 - 1 Club Brugge (3-3)
Þetta verður aðeins og stór biti fyrir Belgana. Ég held að við fáum drama og hita í þennan leik. Simeone mætir í svörtu jakkafötunum sínum og sigurmarkið kemur á seinustu 5 mínútunum. Kæmi mér aftur á móti ekki á óvart ef sigurinn verður stærri hjá Atletico Madrid.
Bayer Leverkusen 4 - 1 Olympiakos (2-0)
Þetta verður held ég engin spurning á neinum tímapunkti í kvöld. Strákarnir hans Kasper Hjulmand fara létt með þetta. Grikkirnir ná að klóra í bakkann í restina en kveðja Meistaradeildina í ár. Patrick Schick verður í stuði.
Inter 2 - 1 Bodo/Glimt (1-3)
Norsararnir halda áfram að koma á óvart. Ég held að Milan menn muni byrja af krafti, þeir þurfa þess. Þeir verða komnir snemma í forystu og það verður ekki liðinn langur tími áður en annað mark hjá þeim dettur inn. Hins vegar ná Bodo-menn að pota inn marki undir restina sem mun koma þeim áfram þrátt fyrir að úrslit þessa leiks verði eins marks tap. Milan menn munu svo liggja á gestunum undir lokin og berja boltum inn á teiginn en ekkert gerist og ævintýri Bodö/Glimt heldur bara áfram.
Newcastle 3 - 0 Qarabag (6-1)
Ég held að það séu ekkert mjög margir að bíða heima hjá sér spenntir eftir þessum leik. Ætli Howe nýti ekki leikinn til að hvíla aðeins. Þetta verður samt sem áður þægilegt fyrir Norðlendingana. Barnes setur tvo og Gordon kemur svo inn á og setur að sjálfsögðu eitt.
Staðan í heildarkeppninni:
Fótbolti.net - 5
Gylfi Tryggva - 3
Óskar Smári - 3
Athugasemdir



