Rodri eftirsóttur - Liverpool vill tyrkneskan varnarmann - Julian Alvarez aftur til Englands? - Man Utd og Arsenal berjast um varnarmann
   þri 24. febrúar 2026 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Bandarískt félag reynir að kaupa Griezmann
Mynd: EPA
Bandaríska félagið Orlando City hefur verið í viðræðum um að fá Antoine Griezmann, leikmann Atletico Madrid, til liðs við sig. The Athletic greinir frá þessu.

Orlando er með pláss til að næla í einn svokallaðan 'designated player' sem er hágæðaleikmaður sem myndi kosta félagið mikið og þessi flokkur leyfir félögum að eyða yfir launaþak deildarinnar.

Hann er efstur á óskalista félagsins en það er ekkert samkomulag í höfn. Félagið er einnig að skoða aðra leikmenn. Það kemur fram á The Athletic að Orlando sé eitt af fjórum félögum í MLS deildinni sem er að skoða hann.

Griezmann hefur lengi verið orðaður við MLS deildinna. Hann er mjög hrifinn af amerískum íþróttum og kúltúrnum, hann ferðast mikið til Bandaríkjanna og hefur m.a. sést til hans á NBA leikjum
Athugasemdir
banner
banner
banner