Inter tekur á móti Bodö/Glimt í kvöld í seinni viðureign liðanna í umspili Meistaradeildarinnar. Inter þarf að snúa við 3-1 tapi frá Noregi til að koma sér í 16-liða úrslitin.
Argentínumaðurinn Lautaro Martínez meiddist á kálfa í fyrri leiknum og verður ekki með í kvöld. Hann verður frá næstu þrjár til fjórar vikurnar.
Forráðamenn Inter munu hafa kvartað við UEFA þar sem þeir telja að aðstæður í Noregi hafi stuðlað að meiðslunum. Það var mikill kuldi í Bodö og heimavöllur liðsins er lagður gervigrasi.

Þurfa þrjú mörk en eru án síns helsta markaskorara
Lautaro er markahæsti leikmaður Inter á tímabilinu með 18 mörk en meiðsli hans koma á mjög slæmum tíma.
Hann missir af mikilvægum leikjum í ítölsku A-deildinni en þar á meðal er grannaslagur gegn Milan; þá missir hann af fyrri leiknum gegn Como í undanúrslitum ítalska bikarsins og gæti misst af fyrri leiknum í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar ef liðið kemst þangað.
Andrea Stramaccioni, fyrrum stjóri Inter, rýndi í leik kvöldsins fyrir La Gazzetta dello Sport.
„Það má búast við allt öðruvísi leik, San Siro gefur Inter mikið og það má búast við rafmögnuðu andrúmslofti. En það má ekki vanmeta Bodö/Glimt, liðið fór til Madrídar og vann Atletico Madrid fyrir mánuði síðan," segir Stramaccioni.
„Þeir eru án Lautaro en Marcus Thuram er með reynsluna til að stíga upp og leiða sóknina í hans fjarveru."
Athugasemdir