Man Utd gæti keypt McTominay til baka - Man Utd hrifið af Sangare - Real Madrid með augun á Van de Ven
   þri 24. febrúar 2026 10:20
Elvar Geir Magnússon
Tottenham hyggst breyta launakerfinu og taka til í hópnum
Conor Gallagher hjá Tottenham.
Conor Gallagher hjá Tottenham.
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Eigendur Tottenham ætla að breyta launakerfi félagsins og endurnýja leikmannahóp sinn í sumar, ef félaginu tekst að forðast fall úr ensku úrvalsdeildinni.

Tottenham hefur átt erfitt tímabil og er í 16. sæti ensku úrvalsdeildarinnar, fjórum stigum fyrir ofan fallsæti.

Talað hefur verið um að félagið sé ekki að fjárfesta nægileika miklu í leikmannahópi sínum og þá er það með lægsta launakostnaðinn af hinum svokölluðu 'sex stóru' felögum Englands.

Í síðasta opinbera ársreikningi var launakostnaður félagsins 222 milljónir punda (2023-24) en til samanburðar var hann 413 milljónir punda hjá Manchester City.

Tottenham keypti Conor Gallagher frá Atletico Madrid fyrir 35 milljónir punda, hann er með 200 þúsund pund í vikulaun, og þykir það merki um breyttar áherslur innan félagsins. Gallagher er launahæsti leikmaður félagsins sem áætlar að gera fleiri stór kaup í sumar.

Guardian fjallar um málið og hefur eftir heimildarmanni sem er sagður náinn eigendum félagsins að þeir geri sér grein fyrir því að félagið þurfi að breyta kerfinu hjá sér.

Igor Tudor hefur verið ráðinn stjóri til loka tímabilsins. Mauricio Pochettino, landsliðsþjálfari Bandaríkjanna, er talinn líklegastur til að snúa aftur til Tottenham í sumar. Roberto De Zerbi, fyrrum stjóri Brighton og Marseille, hefur einnig verið orðaður við starfið.
Athugasemdir
banner
banner