Jamie Carragher, sérfræðingur á Sky Sports, segir að Man Utd sé nánast öruggt með Meistaradeildarsæti eftir sigur á Everton í kvöld.
Benjamin Sesko skoraði eina mark leiksins eftir að hafa komið inn á sem varamaður en hann hefur skorað þrjú mörk í síðustu fjórum leikjum, öll eftir að hafa komið inn á sem varamaður.
Benjamin Sesko skoraði eina mark leiksins eftir að hafa komið inn á sem varamaður en hann hefur skorað þrjú mörk í síðustu fjórum leikjum, öll eftir að hafa komið inn á sem varamaður.
Man Utd er í 4. sæti, þremur stigum á undan Chelsea og Liverpool og Carragher telur að minna leikjaálag hjálpi Man Utd í baráttunni.
„Manchester United er nánast öruggt með Meistaradeildarsæti. Aston Villa virðist vera tapa stigum eins og er. Þeir fá Evrópuleik á fimmtudagskvöldi, Liverpool og Chelsea eru enn í Meistaradeildinni og enska bikarnum og vilja standa sig vel að minnsta kosti í annarri keppninni, ná í undanúrslit eða úrslit. Ég sé ekki fyrir mér að Man Utd komist ekki í Meistaradeildina," sagði Carragher.
Athugasemdir




