City, Liverpool, Arsenal, RB Leipzig, Dortmund og Barcelona fylgjast með Hall - Man City gæti fengið Porro frá Spurs á afsláttarverði
   mán 23. febrúar 2026 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Glasner: Það sem Oliver Glasner vill skiptir ekki máli
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Oliver Glasner, þjálfari Crystal Palace, svaraði spurningum eftir nauman sigur gegn botnliði Wolves er liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni í gær.

Sigurinn er afar kærkominn fyrir Palace sem hefur aðeins unnið tvo leiki af síðustu sextán í öllum keppnum.

Samningur Glasner við Palace rennur út komandi sumar og hefur hann ekki áhuga á að framlengja við félagið. Hann hefur kvartað undan stefnu félagsins í fjölmiðlum eftir að lykilmenn liðsins eru seldir burt trekk í trekk. Þá voru háværir orðrómar uppi um að Glasner hefði misst áhuga á starfinu og yrði rekinn þegar illa gekk í vetur.

„Það sem Oliver Glasner vill skiptir ekki máli, það sem skiptir máli er Crystal Palace. Ef félaginu líður eins og það þurfi að breyta um þjálfara, þá ætla ég ekki að standa í vegi fyrir því. Ég er búinn að eiga samræður við stjórnendur og þeir telja að ég sé rétti maðurinn til að stýra liðinu út tímabilið," sagði Glasner.

„Það er mikilvægt fyrir mig að ég sé hérna útaf því að stjórnin vill hafa mig, ekki bara útaf því að ég náði besta árangri í sögu félagsins á tveimur árum við stjórnvölinn. Ég talaði líka við leikmennina til að spyrja hvað þeir vildu og ég er ennþá hjá félaginu. Crystal Palace er í fyrsta sæti og ég er 100% staðráðinn í því að gera mitt besta fyrir félagið.

„Til þess þá þarf ég á leikmönnunum að halda útaf því að án þeirra get ég gert voðalega lítið. Það skiptir höfuðmáli að leikmennirnir hafi trú á verkefninu sem er í gangi hérna.

„Það er mikilvægt að félagið hefur trú á okkur. Stjórnin treystir okkur til að snúa þessu slæma gengi við."


Palace er partur af þéttum pakka um miðja úrvalsdeild með 35 stig eftir 27 umferðir, tíu stigum frá evrópusæti. Liðið er tíu stigum fyrir ofan fallsvæðið þrátt fyrir hörmulegt gengi síðustu mánaða.

   22.02.2026 20:00
Glasner: Í lífinu þarf maður stuðning þegar gengur illa

Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 31 21 7 3 61 22 +39 70
2 Man City 30 18 7 5 60 28 +32 61
3 Man Utd 30 15 9 6 54 41 +13 54
4 Aston Villa 30 15 6 9 40 37 +3 51
5 Liverpool 30 14 7 9 49 40 +9 49
6 Chelsea 30 13 9 8 53 35 +18 48
7 Brentford 30 14 5 11 46 41 +5 47
8 Everton 30 12 7 11 34 35 -1 43
9 Newcastle 30 12 6 12 43 43 0 42
10 Bournemouth 30 9 14 7 44 46 -2 41
11 Fulham 30 12 5 13 40 43 -3 41
12 Brighton 30 10 10 10 39 36 +3 40
13 Sunderland 30 10 10 10 30 35 -5 40
14 Crystal Palace 30 10 9 11 33 35 -2 39
15 Leeds 30 7 11 12 37 48 -11 32
16 Tottenham 30 7 9 14 40 47 -7 30
17 Nott. Forest 30 7 8 15 28 43 -15 29
18 West Ham 30 7 8 15 36 55 -19 29
19 Burnley 30 4 8 18 32 58 -26 20
20 Wolves 31 3 7 21 23 54 -31 16
Athugasemdir
banner
banner