Bayern veitir Man Utd samkeppni um Anderson - Liverpool hefur áhuga á Camavinga - Óvissa með leikmenn Arsenal
   mán 23. febrúar 2026 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Edwards um rauða spjaldið: Get ekki varið þetta
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Rob Edwards þjálfari Wolves var svekktur eftir naumt tap gegn Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni í gær.

Úlfarnir sýndu flotta takta og fengu færi til að taka forystuna en klúðruðu þeim. Dean Henderson varði vítaspyrnu frá Tolu Arokodare undir lok fyrri hálfleiks og lét Ladislav Krejci reka sig af velli þegar hann fékk tvö gul spjöld með stuttu millibili í síðari hálfleiknum.

Evann Guessand skoraði sigurmark fyrir Palace á lokamínútunum svo lokatölur urðu 1-0.

„Það voru tvö atvik sem breyttu þessum leik fyrir okkur. Fyrst þegar við klúðruðum vítaspyrnunni, sem getur gerst, og svo rauða spjaldið sem breytti gangi leiksins," sagði Edwards við fréttamenn eftir tapið.

„Okkur leið mjög vel 11 gegn 11 og við vorum líka góðir eftir að við misstum mann af velli, en þeir skoruðu á einu andartaki þegar við misstum einbeitinguna.

„Ég hélt að við myndum vinna þennan leik. Skilaboðin frá mér í hálfleik voru að við ætluðum ekki að sætta okkur við stig, við ætluðum að stíga upp og sækja sigurinn. Það vantaði bara uppá lokasendinguna en frammistaða leikmanna var yfir heildina litið mjög góð. Þetta er skref í rétta átt fyrir okkur þó að úrslitin hafi verið neikvæð."


Edwards var að lokum spurður út í rauða spjaldið.

„Við verðum að vera betri en þetta, þetta er klaufalegt. Hann (Ladislav Krejci) verður að læra af þessu. Orsökin er bara pirringur en hann má ekki gera þetta. Hann hefur verið frábær fyrir okkur en þetta kostaði okkur. Ég get ekki varið þetta."
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 31 21 7 3 61 22 +39 70
2 Man City 30 18 7 5 60 28 +32 61
3 Man Utd 30 15 9 6 54 41 +13 54
4 Aston Villa 30 15 6 9 40 37 +3 51
5 Liverpool 30 14 7 9 49 40 +9 49
6 Chelsea 30 13 9 8 53 35 +18 48
7 Brentford 30 13 6 11 46 42 +4 45
8 Everton 30 12 7 11 34 35 -1 43
9 Newcastle 30 12 6 12 43 43 0 42
10 Bournemouth 30 9 14 7 44 46 -2 41
11 Fulham 30 12 5 13 40 43 -3 41
12 Brighton 30 10 10 10 39 36 +3 40
13 Sunderland 30 10 10 10 30 35 -5 40
14 Crystal Palace 30 10 9 11 33 35 -2 39
15 Leeds 30 7 11 12 37 48 -11 32
16 Tottenham 30 7 9 14 40 47 -7 30
17 Nott. Forest 30 7 8 15 28 43 -15 29
18 West Ham 30 7 8 15 36 55 -19 29
19 Burnley 30 4 8 18 32 58 -26 20
20 Wolves 31 3 8 20 24 54 -30 17
Athugasemdir
banner