City, Liverpool, Arsenal, RB Leipzig, Dortmund og Barcelona fylgjast með Hall - Man City gæti fengið Porro frá Spurs á afsláttarverði
   mán 23. febrúar 2026 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Carrick ekki í miklum samskiptum við Ratcliffe
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Michael Carrick, þjálfara Manchester United, hefur tekist að komast hjá beinum svörum varðandi umdeild ummæli Sir Jim Ratcliffe um innflytjendur á Bretlandi.

   12.02.2026 13:45
Skoða hvort Ratcliffe hafi brotið reglur með ummælum um innflytjendur


Man Utd gaf út yfirlýsingu eftir ummæli Ratcliffe, sem er hluteigandi og stjórnandi í félaginu, og fékk hann áminningu frá enska fótboltasambandinu. Forsætisráðherra Bretlands og borgarstjórinn í Manchester eru meðal þeirra sem fordæmdu ummælin.

Carrick nýtti síðasta fréttamannafund til að ítreka bakgrunn og stefnu Man Utd sem á ríka sögu af innflytjendum að baki, í takt við yfirlýsingu félagsins, án þess að ræða þó beint um ummæli Ratcliffe.

Carrick segist ekki vera í miklu sambandi við Ratcliffe og þvertekur fyrir að ummælin hafi haft neikvæð áhrif á leikmannahópinn sinn.

„Við erum allir á sömu blaðsíðu hérna, það er augljóst þegar þið sjáið liðið spila. Ég hef ekki séð Jim síðan við spiluðum við Arsenal og það er allt í góðu. Ég sé ekki af hverju ég ætti að þurfa að eiga stöðug samskipti við hann miðað við hlutverkið sem ég er í hjá félaginu," sagði Carrick.

„Mitt hlutverk er að skapa gott andrúmsloft í klefanum og leiða aðalliðið til leiks. Ég er með rödd og get talað til stuðningsmanna og það er líka partur af hlutverki mínu hér, en ég þarf ekki nauðsynlega að eiga stöðug samskipti við yfirmenn mína."

Man Utd heimsækir Everton í úrvalsdeildinni í kvöld og getur endurheimt fjórða sætið með sigri.

   20.02.2026 17:19
Sir Jim Ratcliffe sleppur við sekt

Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 31 21 7 3 61 22 +39 70
2 Man City 30 18 7 5 60 28 +32 61
3 Man Utd 30 15 9 6 54 41 +13 54
4 Aston Villa 30 15 6 9 40 37 +3 51
5 Liverpool 30 14 7 9 49 40 +9 49
6 Chelsea 30 13 9 8 53 35 +18 48
7 Brentford 30 13 6 11 46 42 +4 45
8 Everton 30 12 7 11 34 35 -1 43
9 Newcastle 30 12 6 12 43 43 0 42
10 Bournemouth 30 9 14 7 44 46 -2 41
11 Fulham 30 12 5 13 40 43 -3 41
12 Brighton 30 10 10 10 39 36 +3 40
13 Sunderland 30 10 10 10 30 35 -5 40
14 Crystal Palace 30 10 9 11 33 35 -2 39
15 Leeds 30 7 11 12 37 48 -11 32
16 Tottenham 30 7 9 14 40 47 -7 30
17 Nott. Forest 30 7 8 15 28 43 -15 29
18 West Ham 30 7 8 15 36 55 -19 29
19 Burnley 30 4 8 18 32 58 -26 20
20 Wolves 31 3 8 20 24 54 -30 17
Athugasemdir
banner
banner