| mán 23.feb 2026 18:00 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð |
|
UTAN VALLAR: KSÍ fékk 450 milljón króna styrk frá stjórnvöldum vegna Laugardalsvallar
KSÍ hefur birt ársreikninginn sinn fyrir árið 2025 í aðdraganda 80. ársþingsins sem fer fram á Egilstöðum þann 28. febrúar næstkomandi. Á næstu dögum verða birtar nokkrar greinar þar sem rýnt verður í tölurnar.
Greinin var einnig birt á utanvallar.is
KSÍ átti eignir upp á 1.267 milljónir króna í árslok 2025. Eignirnar lækkuðu um rúmlega 216,3 milljónir króna á milli ára og hefur eignastaðan ekki verið svona lág síðan 2020, þegar eignir KSÍ námu 1.096 milljónir króna. Það sem munaði helst á milli 2024 og 2025 voru þrír þættir.
Í fyrsta lagi var það verk í vinnslu sem datt út. KSÍ gat eignfært 208 milljónir árið 2024 sem verk í vinnslu vegna framkvæmdanna á undirlagi Laugardalsvallar. Verkinu var lokið árið 2025 og því datt þessi liður út. Í skýringum ársreikningsins kemur fram að heildarkostnaður verkefnisins var 538 milljónir króna og að Reykjavíkurborg og Mennta- og barnamálaráðuneytið veittu KSÍ styrk upp á 500 milljónir króna fyrir framkvæmdunum. Sá kostnaður sem KSÍ þurfti því að bera straum af í þessu verkefni var tæplega 38 milljónir króna.
Í öðru lagi er það lækkun á viðskiptakröfum. Viðskiptakröfur KSÍ voru 428,8 milljónir króna í árslok 2024, en ári seinna höfðu þær lækkað um hátt í 130 milljónir króna og voru 298,8 milljónir króna. Ef litið er á skýringar ársreikningsins má sjá að þótt innlendar viðskiptakröfur jukust á milli ára, þá lækkuðu erlendar viðskiptakröfur þónokkuð meira. Í árslok 2024 voru erlendar viðskiptakröfur KSÍ 359,7 milljónir króna en 145,4 milljónir króna í árslok 2025.
Í þriðja lagi hækkaði handbært fé um 145,8 milljónir króna á milli ára. Handbært fé KSÍ stóð í 492,3 milljónum króna í lok síðasta árs en hafði verið 346,5 milljónir króna árið áður. Í skýringum ársreikningsins má sjá að bróðurpartur handbærs fjár KSÍ er í íslenskum krónum en tæplega 3,8% er í erlendri mynt.
Ef litið er á sjóðstreymisyfirlitið má sjá að handbært fé frá rekstri var hátt í 112 milljónir króna, töluvert lægra en árið áður þegar það var 306,4 milljónir króna. Hins vegar voru fjárfestingarhreyfingarnar í ár jákvæðar um 140,7 milljónir króna, að miklu leyti þökk sé styrkja vegna framkvæmda sem voru 450 milljónir króna. Að lokum má sjá undir fjármögnunarhreyfingum að 106,9 milljónum króna var ráðstafað til aðildarfélaga KSÍ.
Þá er veltufjárhlutfall KSÍ í góðu standi og var 167,4% í árslok 2025 eftir að hafa verið 140,7% árið áður.
Skuldir KSÍ stóðu í 480,4 milljónum króna í árslok 2025 og lækkuðu um tæplega hátt í 249 milljónir króna á milli ára, ríflega 34,1% lækkun. Skuldir KSÍ hafa ekki verið svona lágar síðan árið 2020 þegar þær voru 357 milljónir króna. Það voru tveir þættir sem helst orsökuðu þessa lækkun. Annars vegar lækkun á viðskiptaskuldum og hins vegra lækkun á fyrirframinnheimtum tekjum.
Viðskiptaskuldir KSÍ lækkuðu um 167 milljónir króna á milli ára og voru 196,5 milljónir króna í árslok 2025. Viðskiptaskuldir KSÍ eru að langmestu leyti innlendar, en þó eru tæplega 11 milljónir króna erlendar viðskiptaskuldir. Ástæðan fyrir þessari lækkun á viðskiptaskuldum gæti hugsanlega verið tengt framkvæmdunum á Laugardalsvelli, sérstaklega í ljósi þess að handbært fé jókst um 145,8 milljónir króna á sama tíma. Þar sem við sjáum í sjóðstreymisyfirlitinu að KSÍ fékk 450 milljónir frá stjórnvöldum þá er hægt að lesa á milli línanna.
Skuldahlutfall KSÍ lækkuðu nokkuð hressilega á síðasta ári og var 37,9% í árslok 2025 en árið áður hafði það verið 49%. Þrátt fyrir að eignir lækkuðu um 14,6% á árinu þá lækkuðu skuldir knattspyrnusambandsins nokkuð meira, tæplega 34,1% lækkun.
Eigið fé jókst um ríflega 33 milljónir króna á milli ára, þökk sé jákvæðrar afkomu á árinu. Síðustu fimm árin hefur meðalstaða eigin fjár verið um það bil 771 milljón króna hjá knattspyrnusambandinu.




