Fyrrum Liverpool-maðurinn Jamie Carragher segist hafa orðið vitni að ráni tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni er Liverpool vann dramatískan 1-0 sigur á Nottingham Forest í dag.
Carragher var allt annað en sáttur með frammistöðu Liverpool í hálfleik.
Hann sagði Forest yfir á öllum sviðum fótboltans og var ekkert sem benti til þess að Liverpool myndi taka stig og hvað þá þrjú úr þessum leik.
Á lokamínútunum kom Alexis Mac Allister boltanum tvisvar í netið. Fyrst var boltanum hreinsað í hann og í netið, en það mark var dæmt af þar sem boltinn fór af olnboga hans og í markið, en það seinna fékk að standa.
Þá hirti hann frákast úr miðjum teignum, en það mark þótti einnig umdeilt vegna mögulegrar rangstöðu á Virgil van Dijk. Hálf-sjálfvirk rangstöðutækni deildarinnar mat það sem svo að Ola Aina hafi spilað Van Dijk réttstæðan og fékk því markið að standa.
Carragher segir Liverpool heppið að hafa tekið öll stigin úr leiknum.
„Þetta er eitt stærsta rán sem ég hef séð á þessu tímabili.“
„Ngumoha gerði meira á fimmtán mínútu en Salah og Gakpo gerðu allan leikinn. Hann breytti leiknum og þarf að fá tækifærið í byrjunarliðinu.“
„Ekkert lið er betra en Liverpool að ná í sigurmark á lokamínútum leikja í ensku úrvalsdeildinni,“ sagði Carragher.
Athugasemdir




