„Ég er ánægður með að fá eitt stig. Ég virði það. Við vorum í basli og þá er ég ánægður með að fá stigið," sagði Ólafur Jóhannesson þjálfari toppliðs Vals eftir 1-1 jafntefli gegn Fjölni í 9. umferð Pepsi-deildar karla.
Ólafur var ekki ánægður með lið sitt í dag.
Ólafur var ekki ánægður með lið sitt í dag.
Lestu um leikinn: Fjölnir 1 - 1 Valur
„Ég var ekki ánægður með liðið mitt. Mér fannst við ekki vera tilbúnir í dag, því miður. En ég er því ánægður með að ná inn stigi."
„Það var ekki nægilega mikil ákefð í leik okkar," sagði Óli Jó.
Dion féll innan teigs í fyrri hálfleik og vildi víti. Óli segist ekki hafa séð það nægilega vel.
„Ég ætla rétt að vona að það hafi ekki verið víti, Péturs vegna. Því Pétur er góður dómari."
Valsmenn jöfnuðu síðan úr víti á 84. mínútu.
„Mér sýndist hann fara aftan í bakið á honum. Ef hann gerði það, þá er það víti."
Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir