Júlíus Júlíusson, þjálfari Aftureldingar, var svekktur eftir 3-1 tap sinna stúlkna gegn Selfossi í Pepsi-deild kvenna í kvöld. Liðið er svo gott sem fallið eftir tapið og vandar Júlíus dómaranum í kvöld ekki kveðjurnar.
„Það klikkaði ekkert hjá okkur, dómgæslan var bara ekki upp á marga fiska. Hann færir þeim vítaspyrnu líka í lok leiks, ég get alveg staðið fyrir það að þetta var vítaspyrna þarna í byrjun, en öll brot á vellinum voru þeim í vil og þetta var mjög sérstakt í dag," sagði Júlíus við Fótbolta.net.
„Við stóðum okkur vel í fyrri hálfleik og vorum vel inni í leiknum, það var 1-1 í hálfleik."
„Öll vafaatriði voru þeim í hag, það sjá allir sem vilja."
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir